Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1956, Síða 20

Sameiningin - 01.12.1956, Síða 20
66 Sameiningin heldur dagur væri á lofti eða nótt, hvort heldur væri sumar eða vetur, nístingskuldi eða glóðarhiti, eða hvort nokkur væri hagnaðarvon í þeirri heimsókn sem fyrir lá, eða þeirri þjónustu sem veita skyldi. Hinir snauðu og vinafáu, sem löngum hafa dvalizt í kjallaraíbúðum og í rishæðum íbúðanna hér í vesturbænum, þekktu fótatakið hans. Þeir vissu að þeim var óhætt að biðja hann að koma, eins fyrir því, þó að buddan væri tóm. Hann skildi kjör þessa fólks. Sjálfur var hann alinn upp í sárri fátækt, og fátæktin var jafnan hans fylgikona. En samt var hann svo óendanlega ríkur; hann gat miðlað öðrum af auðlegð anda síns, ausið af brunnum reynslu sinnar, hann var hið mikla ljúfmenni og frábæri mannvinur. Er vér lesum ævisögur manna eins og hans, koma orð meistarans mikla í hugann: „hungraður var ég og þér gáfuð mér að drekka, gestur var ég og þér hýstuð mig, nakinn og þér klædduð mig; sjúkur var ég og þér vitjuðu mín.“ Og þeir sögðu: Hvenær, herra? Og hann sagði: Svo framarlega sem þér hafið gjört það einum þessara minnstu bræðra minna, þá hafið þér gjört mér það.“ „Sælir eru þeir, sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu, því að þeir munu saddir verða. Sælir eru miskunnsamir, því að þeim mun miskunnað verða. Sælir eru hjartahreinir, því að þeir munu Guð sjá.“ Eins og ósjálfrátt setjum vér þessi orð Drottins í sam- band við ævistarf og ævilok „læknisins elskaða.“ ☆ ☆ ☆ En Sigurður var ekki aðeins læknir. Hann var óvenju- lega fjölbreyttur og margbrotinn persónuleiki. Það var engu líkara en að forsjónin hefði lagt honum til nógan efnivið fyrir marga menn, og hvern þeirra með meira en meðal hæfileikum. Ævisaga hans er ævintýri líkust; það er saga um sunnlenzkan bóndason, sem klífur þrítugan hamarinn frá örbyrgð og allsleysi, unz hann gerist embættis- maður og mikilvirkur leiðtogi þjóðbræðra sinna í fjarlægri heimsálfu, og jafnframt þjóðkunnur í heimalandinu og í hávegum hafður, einnig þar. Á þessari þroskabraut leggur hann á margt gjörva hönd: Vér sjáum honum bregða fyrir á ýmsum tímum þar sem hann stundar sjómennsku, vinnur að vegabótum og járnbrautarlagningu, leggur fyrir sig tjald- sauma; hann er skáld, rithöfundur, ritstjóri blaða bæði á

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.