Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1959, Qupperneq 7

Sameiningin - 01.03.1959, Qupperneq 7
Sameiningin 5 Ó, Guð vors lands, ó, lands vors Guð, vér lifum sem blaktandi, blaktandi strá; vér deyjum, ef þú ert ei ljós það og líf, sem að lyftir oss duftinu frá. :/: íslands þúsund ár :/: verði gróandi þjóðlíf með þverrandi tár, sem þroskast á guðsríkis braut. En hvernig má það verða? Hvernig getur slík þjóðarvakning orðið í raun og sann- leika? Fyrst svo, að hver, sem hennar beiðist, biðji þess, að hún megi verða í hans eigin hjarta. En jafnframt er þörf öflugra samtaka um þjóðarupp- eldið — uppeldi æskulýðsins til kristinnar trúar og siðgæðis. Því að kristindómurinn berst ekki eins og dautt erfðagóss frá einni kynslóð til annarrar, heldur þarf kristin ávallt að nema land með hverri nýrri kynslóð. Og um það landnám verður að fara eldi hans, sem lætur hjörtun brenna í návist sinni. Ég óttast það, að slaknað hafi á þjóðaruppeldinu að þessu leyti. Það hefir myndazt tóm í þjóðarsálinni, er fyllast þarf kristnu trúarlífi. Vér verðum að sameinast hin eldri til verndar og styrktar æskunni, sem á að erfa landið, leiða hana með lífi og starfi til hans, er bendir oss að sækja fram hærra og hærra. Hvorki heimili, skóli né kirkja má láta sinn hlut eftir liggja. Samstarf þessara þriggja aðila er brýnust nauðsyn. Þá nægir, því að við gott uppeldi barna er einnig tengt dýrlegasta fyrirheit fyrir hina eldri, sem að því standa: Um leið og vér leitumst við að efla sálarþroska barnanna og leiða þau á Guðs vegum, þá ala þau oss upp til guðsríkis. Hversu dýrlegt er hlutverk foreldranna og heimilanna. Þeim er trúað fyrir barnssáþ sem er heilög — sem er bæn um betri heim, og innsta og dýpsta þrá hennar þrá til Guðs. Um hana þarf að leika andrúmsloft trúarinnar og kær- leikans, fyrirbænanna og hrein leikans — allt frá fæðingu, já, fyr en það. Skírnarboði frelsarans fylgir annað boðorð um það að leyfa börnunum að koma til hans, gjöra þau að

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.