Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.03.1959, Side 8

Sameiningin - 01.03.1959, Side 8
6 Sameiningin lærisveinum, kenna þeim að halda það, sem hann hefir boðið, innræta þeim hugarfar hans. Þannig eiga allir for- eldrar að vera kristniboðar barna sinna, hvert heimili gróðui'lundur Guðs ríkis. Það eru einmitt fyrstu árin, sem móta manninn dýpst. Á þeim er lögð undirstaða uppeldisins. Hvernig er trúaruppeldið fyrsta, sem íslenzk börn njóta? Gjöra foreldrar barnanna og heimili skyldu sína? Beina þau áhrifum Krists til barnanna og kenna þeim að biðja í hans nafni? Þessar spurningar þarf að íhuga fyrir augliti Guðs og ákalla hann um hjálp til þess að varðveita perluna dýru og skæru. Séu heimilin kristin, alast þar upp kristin börn. Með kristnum heimilum skal land byggja. Þegar svo skólinn tekur að eiga þátt í trúaruppeldinu, þarf að hefja samvinnu um það við heimilin. Kristin fræði eiga aftur að verða öndvegisgi’ein barnafræðslunnar og í höndum þeirra einna, sem hafa á henni lifandi áhuga og kenna kristindóm með líferni sínu og framkomu allri. Þekking er góð og trúfræði við barna hæfi og unglinga, en mestu varðar, að kennarinn glæði trú þeirra svo, að hún móti líf þeirra. Og þótt nafn námsgreinarinnar sé annað, þá á kristindómurinn jafnan að vera undirstaðan — kenning Jesú Krists, studd af breytni kennarans og dagfari. Allar greinar á að kenna þannig, að þær geti lyft hugum æsku- mannanna nær himnum, nær frelsaranum, nær Guði, því að jafnvel á minnsta blað jurtarinnar er margt ritað um skapara heimsins og föður lífsins. Hugsjón skólanna á að vera sú, að hver sá, sem trúað er fyrir uppeldi æskulýðsins sé kristinn maður, er innræti nemendum sínum um fram allt heilaga trú og kærleika og' styðji þannig göfugustu viðleitni heimilanna. „Leitið fyrst guðsríkis,“ sagði frelsarinn. Ekki næst eða svo eða síðast, heldur fyrst. „Og þá mun allt þetta veitast yður að auki.“ Þessi orð Krists ættu að vera einkunnarorð hvers skóla, greypt í hjörtun. Allt þetta starf skóla og heimila að uppeldi æskulýðsins í kristnum dómi styðji kirkjan og leitist við að fylgjast með hverju barni. Æskulýðsstarf hennar verður að auðgast að

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.