Sameiningin - 01.03.1959, Qupperneq 8
6
Sameiningin
lærisveinum, kenna þeim að halda það, sem hann hefir
boðið, innræta þeim hugarfar hans. Þannig eiga allir for-
eldrar að vera kristniboðar barna sinna, hvert heimili
gróðui'lundur Guðs ríkis. Það eru einmitt fyrstu árin, sem
móta manninn dýpst. Á þeim er lögð undirstaða uppeldisins.
Hvernig er trúaruppeldið fyrsta, sem íslenzk börn
njóta? Gjöra foreldrar barnanna og heimili skyldu sína?
Beina þau áhrifum Krists til barnanna og kenna þeim að
biðja í hans nafni?
Þessar spurningar þarf að íhuga fyrir augliti Guðs og
ákalla hann um hjálp til þess að varðveita perluna dýru
og skæru.
Séu heimilin kristin, alast þar upp kristin börn.
Með kristnum heimilum skal land byggja.
Þegar svo skólinn tekur að eiga þátt í trúaruppeldinu,
þarf að hefja samvinnu um það við heimilin. Kristin fræði
eiga aftur að verða öndvegisgi’ein barnafræðslunnar og í
höndum þeirra einna, sem hafa á henni lifandi áhuga og
kenna kristindóm með líferni sínu og framkomu allri.
Þekking er góð og trúfræði við barna hæfi og unglinga, en
mestu varðar, að kennarinn glæði trú þeirra svo, að hún
móti líf þeirra. Og þótt nafn námsgreinarinnar sé annað,
þá á kristindómurinn jafnan að vera undirstaðan — kenning
Jesú Krists, studd af breytni kennarans og dagfari. Allar
greinar á að kenna þannig, að þær geti lyft hugum æsku-
mannanna nær himnum, nær frelsaranum, nær Guði, því
að jafnvel á minnsta blað jurtarinnar er margt ritað um
skapara heimsins og föður lífsins.
Hugsjón skólanna á að vera sú, að hver sá, sem trúað er
fyrir uppeldi æskulýðsins sé kristinn maður, er innræti
nemendum sínum um fram allt heilaga trú og kærleika og'
styðji þannig göfugustu viðleitni heimilanna. „Leitið fyrst
guðsríkis,“ sagði frelsarinn. Ekki næst eða svo eða síðast,
heldur fyrst. „Og þá mun allt þetta veitast yður að auki.“
Þessi orð Krists ættu að vera einkunnarorð hvers skóla,
greypt í hjörtun.
Allt þetta starf skóla og heimila að uppeldi æskulýðsins
í kristnum dómi styðji kirkjan og leitist við að fylgjast með
hverju barni. Æskulýðsstarf hennar verður að auðgast að