Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.03.1959, Side 9

Sameiningin - 01.03.1959, Side 9
Sameiningin 7 lífsþrótti og fjölbreytni og hreyfingin, sem nú er vakin í þá átt, eflast og blómgast. Einkum er mikils um vert, að fermingarundirbúningur barnanna verði sem mestur og beztur og meginþáttur í starfi prestanna, unz hámarki er náð við ferminguna í kirkjunni og altarisgönguna, einna fegurstu og tilkomumestu og dýrlegustu hátíðina, sem lífið á. Aldrei hefir æskuskari íslands verið fríðari né glæsi- legri en nú, aldrei betur gefin andlega né líkamlega. Hver getur gleymt honum, er hann gengur innar í hvítum skrúða sakleysisins og hreinleikans, játar fylgd við frelsarann, krýpur og þiggur blessun hans. — Og þó vofir yfir honum á næstu árum hætta ótal freistinga og jafnvel sú, að hann gleymi um stund Guði sínum og reisi sér bústað á brúnni, eins og lögmál lífsins væri aðeins þetta: Af jörðu ert þú kominn. Að jörðu skalt þú aftur verða. Já, þótt hefji loks alla Guðs hjálparkraftur, er hægara að falla en rísa upp aftur. Það, sem bjargar á þessum árum, er veganestið að heiman, helgað af góðum foreldrum, kennurum og presti. Sá arfur mun duga til fullorðinsáranna og stofnunar nýjum heimilum. Þá mun þjóðin í heild finna sjálfa sig og það sannast, að fyrir andans framför eina fólksins hönd er sterk. Þá mun þjóðin keppa fram að vilja hans, sem er vegur- inn, sannleikurinn og lífið. Þá verða komandi ár oss gæfuár og blessunar. Þá verður þjóðin Guðs þjóð. --------0-------- En Jesús segir þessi orð einnig við oss hvert um sig, alveg eins og lærisveinana forðum: Veröldin er brú, far yfir hana, en reis þér ekki bústað á henni. Þetta er heilræðið, sem hann gefur oss á morgni nýja ársins. Fer yður ekki líkt og' mér, er þér lítið til baka? Finnst yður ekki lífið hafa verið ferð? Margt hefir þar verið veikt og mjög ófullkomið. En þegar vér lítum yfir þær stundir, sem hugur vor hefir komizt hæst og vér fundið það, sem vér eigum sannast og bezt — þegar vér höfum virt það fyrir oss, sem vér getum talið hæstu tindana í lífi voru, þá er oss

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.