Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1959, Page 12

Sameiningin - 01.03.1959, Page 12
10 Sameiningin Ástin til Islands og trúin á framtíð þess er ofarlega í þessari bók hvar sem upp er slegið. Tvö vers á bls. 65 slá á þennan streng: Töfraland með tindafjöll, tún og' græna hjalla, berjalautir, blómahöll, björg og klettastalla. — Þú, sem heiðaörmum í okkur fóstrað hefur og í faðmlög funahlý framtíðina vefur. Undrafrón með ógnarbál undir jökulhæðum, mitt í köldum úthafsál ótal búið gæðum. Þó að ferleg feigðarráð frelsið rækju úr landi, aldrei varð samt vargabráð vorfrjáls þjóðarandi. I bókinni eru rúmlega áttatíu kvæði, flest fjalla þau um landhætti, veðurfar og gróður á íslandi. Á fyrstu blaðsíðu er svohljóðandi sonnetta: Tveggja folda mold hefir mótað minnar æfi starf. Önnur goð hef ég aldrei blótað ei við stærri málum rótað. Börn mín hljóta engan arf annan en þetta moldarstarf. Þú veizt hvernig það var mótað, því hafa margoft stormar hótað, þegar sól í sorta hvarf. Eigðu minni um marga daga, minni um tún og græna haga. Eigðu minni um stríð og starf. Það er öll mín æfisaga.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.