Sameiningin - 01.03.1959, Page 13
Sameiningin
11
Prédikun
eftir séra Edward Day, flutt í Selkirk, 25. jan. 1959.
„Ég bersl eins og hnefaleikamaður, sem engin vindhögg
slær." —I. Kor. 9:2.
„Ég er ekki með nein láia-læii, ég bersi í alvöru."
— (Phillips)
í þessu merkilega versi
er Páll að tala um eigin-
leika þeirra, sem iðka
hnefaleika eða kapphlaup.
Hann bjó yfir sterkri og
ákveðinni guðstrú, og hann
kunni vel að gera öðrum
grein fyrir henni. Á þessum
dögum syngjum við sálma
eins og til dæmis Áfram
kempur krisínar, þegar við
heyrum skipun herrans:
Far þú í víngarðinn . . . En
margir slá eintóm vind-
högg — sér til skemmtunar.
Hnefaleikamaðurinn æ f i r
sig með miklum umbrotum,
lemur allt sem fyrir er, en
það eru vindhögg. Slík bar-
átta er gagnslaus, sá sem
eyðir kröftum sínum í
vindhögg þreytist fljótlega
og missir marks.
Páll segir ennfremur að
vér „keppum til þess að
hljóta óforgengilegan sigur-
veig.“ í venjulegu kapp-
hlaupi, eða hnefaleik, er það aðeins einn sem ber sigur úr bít-
um, en í hinu mikla kapphlaupi andans, þar sem allir menn
eru þátttakendur, eru eilíf sigurlaun. Þetta er eitt af höfuð-
atriðum guðspjallsins fyrir þennan helgidag. En þar segir
Jesús dæmisöguna um húsbóndann sem greiddi öllum sama
kaup, án tillits til þess hversu lengi þeir höfðu unnið. Sú
SÉRA EDWARD DAY,
prestur Selkirk safnaðar.
Hann er amerískur að ætt og
uppruna, en prédikar á ís-
lenzku eins og þessi ræða ber
vott um.