Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1959, Page 14

Sameiningin - 01.03.1959, Page 14
12 Sameiningin frásaga virtist ýmsum ósanngjörn frá sjónarmiði venju- legrar hagfræði. En þessi dæmisaga Krists hefir ekkert með hagfræði að gjöra. Hún fjallar um Guðs ríki, og um Guð sem stjórnanda ríkisins. Allir menn eru Guðs börn, og náð hans stendur öllum jafnt til boða. Drottinn er ekki að hugsa um fjárhagslegt réttlæti, eða hagfræðilegan jöfnuð í þessu sambandi. Vera má að til sé einn tólfti hluti úr denar, dollar eða pundi, en það er ekkert til sem heitir einn tólfti af kærleika Guðs. Það sem lofsvert er talið í þessari dæmi- sögu, er fúsleikinn til að svara kalli Guðs, og áhuginn, sem kemur fram í þeirri þjónustu sem á eftir fer. Hvort heldur sem tækifærið kom seint eða snemma, þá fögnuðu þeir allir jafnt, og allir unnu af áhuga. Guð heimtar ekki að allir menn séu jafn vel gefnir, en hann heimtar hreinar hvatir og einlægan vilja. Þannig segja þeir eitt og hið sama, bæði Páll og Kristur. Aðeins einn getur unnið forgengilegan sigurveig, aðeins einn getur hlotið fölnandi blómsveig, aðeins einn getur öðlast veraldleg laun, en allir geta eignast hinn óforgengilega sigurveig, allir geta hlotið þann blóm- sveig sem ekki fölnar, allir geta öðlast gjöf Guðs, kærleika hans og þá lífsgleði sem hann veitir. í víngarði Drottins er hagfræði og háttum mannanna snúið við, þannig, að Guð gefur öllum mönnum sem þjóna honum, af náð sinni, kórónu sem mölur og ryð fá ekki grandað. Þetta sjá menn ekki ávallt. Eða þótt þeir sjái það, vilja þeir ekki viðurkenna það. Þeir halda áfram að berja út í loftið, og eyða kröftum sínum til einskis. Þeir eru von- sviknir, og vilja ekki hlýða kalli húsbóndans að fara út í víngarðinn. En Páll skildi þetta. í öðru Korinþubréfinu hælir hann sér af afrekum sínum. Það er upptalning íþrótta- mannsins, en þó greinargjörð um þjónustu hans við Drott- inn. Hann talar um að hann hafi verið í fangelsi, barinn, skipbrotsmaður, grýttur, í lífshættu vegna vatnsflóða, vegna ræningja, vegna samlanda sinna, að hann hafi liðið hungur, þorsta, kulda og klæðleysi. Þegar þeir komu til að taka hann fastan, slapp hann með því að skríða út um glugga og síga niður í körfu. Polycarp, virðulegur og frægur biskup í Smyrna, rann skeið sitt án þess að hika, og var aldrei í vafa um takmarkið. Hann var tekinn fastur vegna þess að hann neitaði að tilbiðja keisarann, og kalla hann drottinn.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.