Sameiningin - 01.04.1945, Qupperneq 5
69
Hinn óhjákvœmilegi kross
Textinn er í Hebrea bréfinu 12. k. 2. v.
“Beinum sjónum vorum til Jesú, höfundar og
fullkomnara trúarinnar, til hans er i stað gleði
þeirrar, er hann átti kost á, leið þolinmóðlega á
Krossi .. . Heb. 12—2.
Kæru Kristnu vinir:
Fastan er nýlega byrjuð. Það er kunnara, en frá þurfi
að segja að ýmsar stórar greinar af hinni evangelísku
kristnu kirkju, hafa fegið föstunni mjög lítinn gaum á
liðnum tímum. Fastan hefir byrjað og endað án þess að
mikið væri eftir því tekið af umræddum kirkjum
Þær þrjár evangelísku kirkjur, sem mest hafa gefið
gaum að föstunni eru, að því er eg bezt þekki til, Kaþólska
kirkjan, Biskupa kirkjan enska og Lúterska kirkjan.
Sumum finst ef til vill að naumast beri að telja
Lútersku kirkjuna hér með. Og það má kannske til sanns-
vegar færast, snertandi sumar greinar hennar. En yfir það
heila tekið tel eg að það megi með fylsta rétti segja að
Lúterska kirkjan gefi fullan gaum að föstunni og erindi
hennar. Minnist eg þess nú að forseti Sameinuðu Lútersku
Kirkjunnar í Ameríku, Dr. Franklin Clark Fry, hefir sent
einskonar hirðisbréf til allra presta þeirrar deildar, til að
minna þá á blessun föstunnar, ef henni sé réttur gaumur
gefinn, þar biður hann þá að notfæra sér nú föstutíðina til
sem allra mestrar andlegrar uppskeru. í þessu hirðisbréfi
segir sá glæsilegi kirkjuhöfðingi þetta meðal annars.
“Eg vil minna yður á velþektan texta, sem um má
segja að af honum hrökkvi neistar: “Því að kærleiki Krists
knýr oss” (2. íor. 14). “Það er bæn mín,” bætir hann við,
“að þessi orð megi ríkja í hjörtum vor allra á föstunni.”
Fyrir nokkrum árum varð sú breyting á þeim kirkjum
sem höfðu gefið föstunni minstan gaum, að þær fóru að
hneigja hug sinn og hjarta að föstunni og erindi hennar til
kristinna manna. Afleiðingin var sú að prestar í þeim