Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.04.1945, Side 14

Sameiningin - 01.04.1945, Side 14
78 Er um hernám ræðir, hefir ríkið sem hernámið fremur af- skipti af stjórn hins hernumda lands. Amerísku hersveitirnar á íslandi hafa gætt þess mjög vandlega að blanda sér ekki inn í innanríkismál íslands; íslendingar hafa haldið áfram stjórn landsins eins og áður.” Samtök íslendinga í þessu mesta velferðamáli þjóðarinn- ar spá góðu um framtíðina ef slík samtök og eining fá að ráða gerðum manna framvegis. Undirbúningur málsins var mikill, og þátttakan í atkvæðagreiðslunni einstæð í sögu þjóðarinnar. Nálega 98 af hundraði allra kosningabærra manna í landinu greiddu atkvæði, og aðeins fáeinir menn vildu enn halda við sambandinu við Danmörku. Vér íslendingar vestan hafs fögnum þessum málalokum og samgleðjumst stofnþjóðinni af öllu hjarta. Vér höfum einnig þá tilfinningu, þrátt fyrir andstæða skoðun sem lengi mun hafa ríkt heima á íslandi að vér höfum einnig stuðlað nokkuð að þessum úrslitum í hinni löngu frelsisbaráttu bræðra vorra heima. Leiðtogar þjóðarinnar á öldinni sem leið kunnu eðlilega illa hinum mikla útflutningi fólksins vestur um haf, sem í sumum sveitum horfði mjög alvarlega við frá sjónarmiði þeirra er eftir voru. Þetta fólk stökk ekki yfirleitt úr landi vegna ónytjungsskapar eða af æfin- týraþrá, heldur af því að því fanst þröngt um sig, og vildi leita nýrra tækifæra og hagstæðari lífskjara. Þetta, út af fyrir sig, mun hafa orðið forráðamönnum landsins alvar- leg hugvekja, og hvöt til að reyna að bæta kringumstæður fólks, svo það tyldi í landinu. En eftir því sem útflutningur óx, og nýlendurnar hér vestra færðust íaukana að fjölmenni og hagsæld, fóru nýjar raddir um frelsi, framfarir og vel- megun ’að berast heim, bæði í einkabréfum og í vestur- íslenzku blöðunum. Það voru raddir fullhuga sem ólu stóra drauma, og frjálsra manna sem áttu sér bjartar vonir. Og þessir menn voru oft þeir hinir sömu sem heima höfðu legið við sveit. Það gat ekki hjá því farið að svo skvndileg umskipti á lífskjörum og framtíðarhorfum vekti mikla athygli víðsvegar um sveitir íslands. Þar við bættist einnig að djarfir leiðtogar komu fram hér vestra. Það voru menn sem stóðu á nýjum sjónarhól, og horfðu skygnum augum kringum sig, túlkuðu skoðanir sínar afdráttarlaust hver sem í hlut átti. Stundum voru raddir þessara manna ásak- andi en æfinlega örvandi, og þrungnar áhuga fyrir velferð íslands. Það er maklegt að vér minnumst þess að enginn

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.