Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.01.1938, Qupperneq 10

Sameiningin - 01.01.1938, Qupperneq 10
8 Árni Sigurðsson fríkirkjuprestur og prófessor Masbech frá Kaupmannahöfn. Mátti svo virðast, að bæði rétti háskólans og íslenzltrar kirkju mundi borgið í höndum þessara manna. Þeir gáfu þann samhljóða úrskurð, að séra Björn Magnússon hefði gert verkefni prófsins bezt skil og mæltu með, að honum væri veitt embættið. Var þetta í marz-mánuði síðastl. vetur. Tók kirkjumálaráðherra, Haraldur Guðmundsson, til greina bend- ingu dómnefndar og skipaði séra Björn Magnússon í embætt- ið til bráðabirgðar, og töldu nú allir, að það væri formsatriði en eklci annað, að fullnaðarveiting kæmi á eftir. Séra Björn slepti brauði sínu, flutti til Reykjavíkur og tók til starfs við háskólann. En í stað þess að formleg veiting embættisins ivlgdi á eftir, samkvæmt meðmælum dómnefndar, kemur það á dag- inn, að kirkjumálaráðherrann veitir séra Sigurði Einarssyni embættið snemma á þessum vetri. Kemur frá honum löng greinargerð fyrir þessu tiltæki, sem ekki verður farið lit í hér að öðru leyti en því, að nefna aðalvörn ráðherrans. í stað þess að láta sér nægja úrskurðinn sem gerður var í Revkjavík, leitar hann lil sænsks háskólakennara til að gera yfirmat á verki nefndarinnar. Eftir hans dómi er svo farið og embættið veitt séra Sigurði Einarssyni. Það er aukaatriði í sjálfu sér að ritverk séra Sigurðar hafa eflaust vakið hjá mörgum vantrú á honum sem guð- fræðikennara og óhlutdrægum vísindamanni, en hitt er aðal- atriði, að hér hefir einn maður — kirkjumálaráðherrann tekið sér vald Lil þess að setja mann í mikilvægt embætti há- skólans og kirkjunnar, þvert á móti ráðum hæfustu manna þeirra stofnana að viðbættum dönskum háskólakennara, er til þess voru kvaddir að dæma um hæfileika umsækjenda. Sé þetta löguin samkvæmt, og annað hefir ekki heyrst, þurfa bæði íslenzka kirkjan og háskólinn, að sæta þeim kjörum frá ríkisins hálfu, sem eru lítt viðunandi. Ber þetta fremur keim af nazisma en íslenzku lýðræði. Er litt skiljanlegt, að nokk- ur ábirgðarfullur ráðherra skuli láta annað eins eftir sig liggja. Mikið má vera ef þetta hefir ekki misboðið svo allri sanngirni og réttsýni, að þjóðin og kirkjan ekki sætti sig við að taka slíku framvegis með jafnaðargeði. Færi svo, getur óheppilegt atvik haft heillavænlegar afleiðingar. K. K. ó.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.