Sameiningin - 01.01.1938, Blaðsíða 12
10
handanna jólanóttina, hefði með ljósinu og dýrð þess verið
mintur á Jesú og fæðing hans, þá hefði hann komist nær
mér. Ljósið hefði talað við mig um hann. Og hann hefði
talað við mig, barnið, í Ijósinu. Ljósið hefði orðið mér þá
ennþá miklu meira virði. En þrátt fyrir þennan skort, þá
var jólanóttin mér helg nótt og fæingarnótt Jesú, frelsarans;
því guspjallasagan um fæðing hans sagði mér það. Hún
var mér dýrleg eins og hún hlýtur að vera hverju barni, sem
heyrir hana. Og hún er dýrleg, guðdómlega dijrleg, og verður
það hverjum manni, sem ekki er blindaður af vantrúar-
kreddu sinni.
Auk fæðingarsögu frelsarans þá var það sálmasöngur-
inn, sem gerði jólanóttina hátíðlega og helga. Eg söng með.
Við vorum öll börnin látin syngja með. Við vorum vanin á
það undir eins og við gátum. Eg býst við að af því stafi
meðfram, hve illa það kemur við mig að sjá t’ólk við messu
sálmabókarlaust og glápa þegjandi á söngflokkinn. Af jóla-
sálmunum var sálmurinn Heims um ból ávalt sunginn. Hygg
eg að lagið hafi einkanlega snortið mig og fyrstu línur sálms-
ins; því sálmurinn, þóft börnum sé kendur bann, er fjarri því
að vera barnasálmur. Sálmurinn þýzki (Stille Nacht, þýð.
ensk: Holy Night eða Silent Night) sein með laginu mun hafa
komið Sveinbirni Egilssyni til að yrkja sálminn, er miklu
meira við hæfi barna.
En það var á jólakertið sem eg vildi minnast.; ekki um
uppruna siðsins; hefi ekki grenslast eftir því. Um táknmynd
þess vildi eg segja nokkur orð. Og á hana hefi eg þegar
minst. En það er önnur hlið líka á henni. Og um hana vil
eg láta Guðmund heitinn skáld Guðmundsson tala. Hefi eg
engan séð eða heyrt betur mæla. Það er í jólaljóðum sínum
að hann syngur um jólakertið.
Hann er að heiman. Og það er á jólum. Hann fer í
kirkju. Þar segir hann:
“Eg er fremst við dyr
i forkirkju seztur.
-----Eg er gestur, gestur.”
En svo hverfur hugurinn til liðins tíma og nemur staðar á
jólunum heima, þegar hann var lítill drengur heima hjá
pabba sínum og mömmu. Hann sér jólakertin og pabba sinn
kveikja á þeim. Hann finnur hvernig pabbi klappar á kollinn
hans og kyssir drenginn sinn.