Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.01.1938, Side 16

Sameiningin - 01.01.1938, Side 16
14 þar að árið 1930, næsta ár tíu þúsundir, þá tuttugu og fimm þúsund, en sextíu og tvær þúsundir árið 1935. Skýrslur frá síðasta ári hafa ekki verið birtar enu, en talið er víst, að straumurinn hafi vaxið enn, og það allmikið. Þessu Gyðinga- flóði kunna Arabar mjög illa, sem von er, þar sem þeirra þjóðflokkur hefir átt þar bólfestu í einar þrettán aldir. Lítil furða, þá sambúðin gangi skrykkjótt með þeim frændalýð austur þar. Áhugi fyrir kirkju og kristindómi er mikið að glæðast yfir í Norðurálfu, segir hérlendur kennimaður, dr. Dexter, nýkominn þaðan. Kirkjusókn er betri en hún hefir verið í einn eða fleiri mannsaldra. Þetta stafar meðfram af ofsókn- um, sem kirlcjan hefir sætt, eða öllu heldur af því að hún hefir haft sjálfstæði til að baka sér ofsóknir, og dug til að þola þær án þess að gugna. Þetta virðir fólkið, og veitir boð- skap hennar meiri eftirtekt en áður. Það er þvi alls ekki ólíldegt að élið, sem nú gengur yfir, verði kirkju og kristin- dómi til mikillar blessunar þegar fram líða stundir. G. G. Fyráta Biblían mín Eftir Margréti E. Sangster. (Þýtt af séra Sigurði Christopherson) Hún amma mín bauð mér iðulega að koma til sín og drekka hjá sér tebolla. Eitt sinn sem oftar gerði hún mér boð. Þegar við höfðum lokið úr bollunum, sagði hún: “Það var af vissri ástæðu, heillin mín, að eg gerði boð eftir þér í dag; mig langaði til að við gætum verið út af fyrir okkur um stund.” “Ætlar þú að sneypa mig?” sagði eg. “Nei, það ætla eg sannarlega ekki að gera,” sagði amina mín hlæjandi. Mig langar lil að gefa þér hlut. Það er svo verðmætur hlutur, að mig langaði til að hafa svolitla athöfn um leið og eg afhenti þér þetta. Með því móti get eg vænzt þess, að þér gleymist þessi stund aldrei.” Eg sagði með eftirvæntingu: “Hvað er þetta, sem þú ætlar að gefa mér? Hvar geymir þú það?” Amma hló lítið eitt og dró fram skúffu í skrifborðinu sínu, og tók þar upp þunnan böggul, vafinn í silkipappír. “Þetta er bók, sem eg ætla að gefa þér.”

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.