Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.11.1942, Page 3

Sameiningin - 01.11.1942, Page 3
ás>ameímttgm Mánaðarrit til stuðnings kirkju og kristindómi íslendinga gefið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi ísl. í Vesturheimi. 57. ÁRG. WINNIPEG, NÓVEMBER, 1942 Nr. 11 Þing Sameinuðu lútersku kirkjunnar (U.L.C.A.) í Louisville F erðahugleiðingar Oft hefi eg fundið til þess að því meira, sem eg sé af víðáttum þessa mikla meginlands, þeim mun sterkari verða þau tengsl, er binda hug og hjarta við átthaga minnar amerísku þjóðar og alt, er telst til trygðar og mats á verð- mætum hennar og sögu. Eg hefi borið gæfu til þess að fá að sjá um helming af ríkjum Bandafylkjanna og um leið að verða fyrir miklu af þeirri fjölbreytni, er stórfengleiki heillar heimsálfu hefir til að bera. Um leið rennur upp fyrir manni að þetta mikla land hefir verið leiksvið marg- breyttra sögulegra æfintýra, sem mynda einn mest heillandi þáttinn í sögu mannanna fram á þennan dag. Hvert nýtt. svæði er ber fyrir augu rifjar upp viðbótarþátt þess mikla hlutverks að skapa hér nýtt þjóðlíf fyrir athafnir og áræði hinna ólíkustu kynstofna. Þegar maður ferðast marga daga og nætur á óslitinni ferð með hröðum farartækjum án þess að nokkur takmörk blasi við, eins og altítt er, verð- ur tilfinningin fyrir því yfirgnæfandi að hér er alt að finna og það í stórum stíl. Sléttur og skógar, fjöll og fyrn- indi, hrikaleg fegurð og hugþæg angurværð, ógnandi auðnir og aragrúi borga, fljót og vötn, fossar og jöklar, heitar lindir og hávær gos, mannvirki og mentastofnanir — að nefna aðeins fátt eitt. Verður þetta eins og tákn þjóðlífsins mikilfenglega, sem innibindur um leið æðstu möguleika og alvarlegustu hættur, en hefir þó sem heild gefið undir fót- inn ýmsum björtustu vonum og mest töfrandi hugsjónum

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.