Sameiningin - 01.08.1933, Blaðsíða 7
Því að það má ekki gleymast, að þótt bannið verði nú
afnumið, þá er sjálfsagt áfengismálið ekki þar með útkljáð.
Langt frá því. Ofdrykkjubölið verður hið sama og áður, eða
verra; þörfin söm, að berjast á móti því. ósigurinn, sem
framundan virðist liggja, er aðeins á einum hólmi; stríðið
heldur áfram á öðrum orustuvöllum eftir sem áður, nema
menn gleymi sjálfu markmiðinu. Baráttan er ekki um ein-
hverja vissa löggjöf, heldur um sjálfan drykkjuskapinn, að
hnekkja honum og útrýma. Kristur sagði lærisveinum sín-
um, að ef þeir yrðu hraktir úr einni borg, þá skyldu þeir fara
í aðra, og halda áfram að prédika. Bannvinir þurfa að muna
eftir því heilræði, og ef þeim er varnað sigurs á einu sviði,
þá að halda baráttunni áfrain, hvar sem tækifæri gefst.
Þetta hafa þeir gjört áður; þeir hafa oft farið halloka,
en unnið þó sigurinn að lokum. Bandaríkjamenn hrósa sér
af því stundum, að þeir hafi tapað fáeinum orustum, en aldrei
neinu stríði. Hið sama munu bindindismenn geta sagt að
lokum um sína styrjöld—nema þeir kasti nú sjálfir frá sér
vopnunum í óviti og örvæntingu.
Kirkjan og áhuginn
Maður nokkuð spurði mig hér um daginn af hverju eg
áliti að áhugaleysið í trúar- og kirkjumálum stafaði. Kvaðst
hann einkum finna til þess hvað ungdóminn snerti. Margir
hafa víst fundið til þess sama, því það er ekki hægt að loka
augunum fyrir þessu: áhuginn fyrir trúar- og kirkjumálum
fer sífelt minkandi.
En hver er orsökin eða orsakirnar fyrir því að svona er?
Þeirri spurningu veit eg að ekki er auðvelt að svara, en þó
vil eg reyna að benda á það sem mér finst um að kenna.
Tímar þeir, er við lifum á, eru einkendir um fram alt
annað af þeim iðnfræðilegu og vísindalegu framförum, er
hafa átt sér stað þennan síðasta mannsaldur. Sérstaklega
hafa vísindin farið sigurför um heiminn. Þau hafa leitast
við að útskýra öll undur tilverunnar á eðlilegan hátt og nú
er svo komið að ekkert þykir útskýrt nema vísindin útskýri
það. Ekkert er játað nema þau játi það. Þau hafa leitast við
að varpa ljósi á það sem hulið var eða er. Þau hafa reynt
að ráða gátu tilverunnar og jafnvel að framleiða lif á rann-
sóknarstofum sínum, þó enn hafi það ekki tekist. Ekki hafa