Sameiningin - 01.08.1933, Side 13
159
gæðis, eða öðru slíku, sem orðið hafi nafni hennar til veg-
semdar út á meðal almennings. Hún hefir komið sér upp
miklu og glæsilegu “musteri” vestur í Los Angeles, og hópað
að sér fjölda manns í þeirri borg og víðar; en hver sá kraftur
hafi verið, sem þessu kom til leiðar, það verður alls ekki ráðið
af blaðafréttunum; enda eru þær sjaldan af þeirri tegund,
sem teíja megi kristnum leiðtoga til mikillar sæmdar.
Það er auðfundið, að frú McPherson er gædd alveg frá-
bærri leikaragáfu; hún hefir sérstakt lag á að láta taka eftir
sér. En hvað það er, sem vekur eftirtektina, virðist hún ekki
láta sig miklu skifta. Hún er að sumu leyti líkari circus-
kónginum Phineas T. Barnum, heklur en Moody trúboða.
ÖII blaðafregna-syrpan ber vott um það. Það er eins og
frúnni leggist alt af eitthvað til, þegar landslýðurinn er í þann
veginn að gleyma henni. Hún missir heilsuna, hverfur úr
mannabygðum, kemst í saupsætti við skyldfólk eða sam-
verkamenn, ratar í trúlofunar-giftingar—eða skilnaðar-æfin-
týri, stendur í málaferlum ýmist sem verjandi eða sækjandi,
og verður af þeim sökum nafnkunn um alt iandið hvað eftir
annað.
Leiklistin er bersýnileg alstaðar í guðsþjónustum og
gjörvöllu starfi l'rúarinnar; og munu áhrif hennar og manna-
forráð vera þaðan runnin að rniklu Ieyli. Andlegu samkom-
urnar, sem hún stýrír í “musteri” sínu þar í Los Angeles, eru,
eftir því sem kunnugir segja, næsta ólíkar venjulegri messu-
gjörð. Meginsalur musterisins—hún kallar það Fonr Square
Gospel Temple—rúmar þúsundir manna, og er venjulega vel
skipaður áheyrendum áður en athöfnin byrjar. Þar er þver-
pallur fyrir gafli, líkur leiksviði, alsettur sjónleika-útbúnaði
fjölbreyttum. Hljóðaukar bera frásögn eða hljóm af allri
athöfninni út á meðal almennings í gegnum víðvarpið, sem
tilheyrir þessu musteri. Neðan við þverpallinn situr hljóð-
færasveitin, þrjátíu manns; en í sjálfum söngflokkinum eru
tvö hundruð, og hafa sæti uppi á leiksviðinu. Húsþjóna-
hersing fer ineð bekkjum, fram og aftur um salinn til að
byrja með, og selur blöðin tvö, sem frúin gefur út; mánaðar-
ritið Bridal Call og vikuhlaðið Four-Square Crusade. Þar er
engin stund látin ónotuð.
Hljóðfærasveitin leikur nú inngangs-lag, og í því bili
gengur frúin inn eftir miðju gólfi. Hún er í síðum kjól, drif-
hvítum, og þar utan yfir i óhneptri kápu blárri, sem lögð er
yfir herðarnar og nemur við gólf. Iiárið er Ijósgult (það var
rauð-jarpt áður), og “gjört upp” af mikilli snild. Frúin