Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1933, Blaðsíða 15

Sameiningin - 01.08.1933, Blaðsíða 15
1G1 kristindóms á eigin býti; og hélzt sú samvinna í mörg ár, í fátækt fyrst og alls konar erfiðleikum, og síðar við auð og metorð—en þá fór líka samkomulagið út um þúfur. Frú Kennedy var stjórnsöm og hyggin ineð afbrigðum; enda hefir dóttir hennar komist í fjárhagsvandræði hvað eftir annað, þrátt fyrir geisimiklar tekjur, síðan þær slitu félagsskapinn. Snemma á árum þessmn giftist Aimée í annað sinn og gekk að eiga matvörusala, Harold McPherson að nafni. Eign- uðust þau son, sem Rolf heitir. Hjónaband þeirra varð enda- slept. McPherson fékk skilnað frá lconu sinni árið 1921 og gaf henni það að sök, að hún hefði hlaupist í burt frá sér. Mæðgurnar unnu saman lengi vel við lítið fararefni. Loks- ins komust þær yfir tjald og bifreið og fóru víða um austur- hluta landsins, þangað til árið 1918, að þær óku þvert yfir álfuna vestur til Los Angeles. Þar varð frú McPherson fvrst fyrir því láni, að tilþrif hennar “komust i blöðin” fyrir alvöru. Hún haí'ði leigt illræmdan slagsmálasal fyrir trú- vakningarfundi sína; síðan auglýsti hún samkomurnar með því að strá fundarboðum úr flugvél út yfir borgina; en til- tækið þótti sæta tíðindum og var básúnað í fréttablöðum um alt landið. Björninn var unninn. Hún fékk undir eins mikla aðsókn. Og eftir það hélt hún því áfram um hríð, að boða til trúvakningar í reykingaskálum eða launknæpum, eða “hvar sem djöfulinn væri heima að hitta.” Blöðin þögðu ekki yfir þeirri nýlundu, og vegur frúarinnar fór sívaxandi. Hún hafði nú komist á snoðir um tvo hluti merkilega: fyrst um þann kynja-kraft, sem getur Jegið í framsíðu-frétt- um stórhlaðanna; og hitt annað, að andlegu málin tolla mjög sjaldan í því öndvegi, nema þau verði sett í samband við eitthvað, sem óandlegt er og fremur kyndugt. Um það skal ekki dæmt hér, að hve miklu ieyti hún hafi vísvitandi notað sér þessa lærdóma síðan í starfi sínu. En það er auðsætt, að hún hefir haft not af þeim hlutum, ekki svo lítil, á ferli sín- um til upphafningar—eða ófrægðar. Annað lagði hún þó greinilega fyrir sig. Það var að örfa gjafmildi fólksins á fundum sínum með ýmsu móti. Snemma hað hún um heimili fyrir sig og hörnin og móður sina, í Los Angeles. Ekki stóð á því; hún fékk húsið með öllum biinaði, og tvær lóðir verðmætar að auki. Eftir það fann hún upp á margs konar snjallræðum tit að auka “offrið.” Hafði jiað góðan árangur; fylgi hennar óx unn- vörpum og tekjurnar um leið. Þá var ráðist í að reisa

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.