Sameiningin - 01.10.1935, Blaðsíða 3
ametntngtn
Mánaðarrit til stuðnings hirlcju og kristindómi íslendinga
gefið út af Ilinu ev. lút. kirkjufélagi tsl. í Vesturheimi.
Ritstjórar:
Séra Kristinn K. Olafson, 3047 W. 72 St., Seattle, Wash., U.S.A.
Séra Guttormur Guttormsson, Minneota, Minn., U.S.A.
Séra Rúnólfur Marteinsson, 493 Lipton St., Winnipeg.
FéhirSir: Mrs. B. S. Benson, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Man.
L. WINNIPEG, OKTÓBER Nr. 10
Hinn annar almenni kirltjufundur íslands var haldinn í
Reykjavík dagana 23.-25. júní á liðnu sumri. Sóttu kirkju-
fundinn alls 61 prestvígðir menn og 130 fulltrúar leikmanna
víðsvegar af landinu. Þessi mjög almenna þátttaka í fund-
inum, þrátt fyrir það að margir urðu að sæta óhentugum
skipaferðum og nokkrir að verja þremur vikum til ferða-
lagsins, ber vott um hve sterk ítök kirkja íslands á hjá þjóð-
inni, og er gleðiríkur vottur um að hún muni ekki láta sér
nægja neitt minna en algert sjálfsforræði í öllum sínum mál-
um. Að það geti vel samrýmst ríkiskirkju fyrirkomulaginu
til lengdar kann að virðast erfitt mörgum af okkur, sem finst
eitthvað óeðlilegt samband ríkis og kirlcju, en allflestir af
hræðrum vorum á ættjörðinni munu lita á þetta á annan veg.
Þessir óháðu kirkjufundir eru greinilegur vitnisburður þess
að kirkjan veit hvað hún vill. Það eru ummæli kirkjuritsins
að heiman “að slíkur fundur muni aldrei áður hafa verið
haldinn með þjóðinni.”
En hafi fundarhaldið í sjálfu sér verið einstakt, þá vekur
ekki síður athygli það, sem þar fór fram. Aðalmál fund-
arins má telja að hafi verið skipun prestakalla, því lítil! vafi
ér á því, að aðsókn á fundinn hvíldi að allmiklu leyti á þeirri
knýjandi þörf er kirkjuvinir fundu hjá sér að mótmæla frum-
varpi launamálanefndar alþingis, er fer fram á að fækka
prestaköllum landsins úr 107 niður í 59, og prófastsdæmum
úr 20 niður í 8. Var þessi milliþinganefnd skipuð 1933 og
Kirkjufundur Islands og preátaátefna