Sameiningin - 01.10.1935, Síða 7
og lætur sér ekki til hugar koma að brýna neinn um skör
fram, heldur einungis að beiðast þess að prestar vorir og
starfsmenn safnaðanna veki athygli á málinu og á þörfinni,
sem til þess er að styrkja það alment, svo tækifæri gefist öll-
um að leggja fram sinn skerf af fúsleik, eftir því sem hjarta-
lag og ástæður leyfa. Það er reynslan að þegar þannig er vak-
in athygli á málinu verður árangurinn fram yfir vonir. Það
er gömul hefð að þetta mál sé borið fram í söfnuðunum í
sambandi við siðbótarhátíðina seint í október eða næstu
sunnudaga. Eru allir hlutaðeigendur beðnir að minnast þessa
og haga framkvæmdum á hverjum stað eftir því sem þeim
finst heppilegast. Allar gjafir, smáar eða stórar, eru vel
þegnar. Þeir, sem á dreyfingu búa en unna máhim vorum,
geta sent tillög sín rakleiðis til féhirðis Kirkjufélagsins.
Aðrir munu flestir senda tillög sin gegnum söfnuð sinn.
Utanáskrift féhirðis er hr. S. O. Bjerring, 550 Banning St.,
Winnipeg, Man.
Þetta mikilsvarðandi mál er hér með lagt frain fyrir al-
menning Kirkjufélags vors og söfnuði. Drottinn blessi með-
ferð þess á hverjum stað, og árangurinn.
K. K. ólafson, forseti.
Svertinginn Richard B. Harrison andaðist í vetur í New
York, nálægt miðjum marz-mánuði, sjötugur að aldri. Mun
hann hafa verið orðinn nafnkunnastur allra blökkumanna
hér í álfu þegar hann lézt; en frægðin var nokkuð einkenni-
leg. Hann hafði haft það verk með höndum, síðustu fimm
árin, sem hann lifði, að leika Guð almáttugan í Svertingja-
leiknum l'ræga, Green Pastures (“Grænar grundir”), og átt
mikinn þátt í því að afla ritinu þeirra vinsælda, sem engin
önnur leiksýning hefir hlotið í Vesturheimi áður, svo að
kunnugt sé.
Ókunnugum verður líklega fyrst fyrir að spyrja, hvort
ekki hafi þá verið eitthvað stórvarhugavert við þessa frægð
Harrisons; hvort það sé hægt að fara með annað eins hlut-
verk á leiksviði, án þess að þeir, sem að því standa, gjöri sig
seka í herfilegu smekkleysi og loddaraskap. Það er víst
hverju orði sannara, að svo mundi fara langoftast, ef slíkri