Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1935, Blaðsíða 9

Sameiningin - 01.10.1935, Blaðsíða 9
155 frá því gengið; en þeir óttuðust viðtökurnar hjá fólkinu. Það myndi verða talið versta óhæfa, sögðu þeir, að sýna dökkleitan himnaher og sjálfan eilífðarkonunginn með þeim hörundslit í leikhúsum landsins. Nýr maður og lítt reyndur í þeirri stétt, Rowland Stebbins, lét þó tilleiðast á endanum að kosta sýninguna; og gal' hann Connelly lausan taum í að velja leikfólkið og stjórna æfingum. Mest var auðvitað undir því komið að geta fengið rétt- an mann til að fara með aðal-“rulluna.” Connelly hafði þegar í byrjun haft augastað á Harrison til þess hlutverks. Harri- son hafði þá fimm um sextugt; fæddur í Canada; foreldrar hans höfðu strokið þangað úr ánauð á dögum þrælahaldsins. Hafði hann mentað sig að mestu sjálfur, lagt sig einkum eftir hókmentum og leiklist og lengi þráð að mega fást við eitthvað ómaksins vert á leiksviði; en framavegurinn er ó- greiður fyrir svartan mann í þeirri átt sem öðrum i Vestur- heimi. Æfiárin gengu í það að hafa ofan af fyrir sér ein- hvernveginn. Hann hafði verið vikadrengur á hóteli, svefn- vagnaþjónn á járnbrautum, umferðakennari, með mörgu fleiru. Um þessar mundir hafði hann með höndum að stjórna ýmisltonar leiksýningum í skólum og söfnuðum Sveidingja þar í New York. Connelly fór nú til Harrisons, sýndi honum aðal-“rull- una” í Green Pastures, og leggur fast að honum að taka það hlutverk að sér. En Harrison var tregur til þess. Honum fór eins og öðrum; hann hafði einhvern beig af þessu sýning- arefni. Vinir hans réðu honum flestir að eiga ekkert við leikinn. En Shipman biskup í New York var á öðru máli, þegar Harrison leitaði ráða hjá honum. “Getur þú farið með þitt hlutverk, án þess að misbjóða lotningu þinni fyrir Guði?” segir biskup. Harrison sagði að sér fyndist hann geta það. “Þá skalt þú taka að þér verkið í Drottins nafni. Það getur ekki hlotist annað en gott af þessum leik. Hann er svo hreinn og græskulaus.” — Þó var Harrison enn tregur. Hann var búinn að veita Connelly afsvar einum þrisvar sinnum, en lét þó alt af tilleiðast að hugsa sig betur um. Þegar svo Counelly bað hann loksins um fullnaðar svar, var hann búinn að hugsa sér að hafna “rullunni,” en þá snéxúst honum hugur alt í einu. Segist hann hafa svarað eins og ósjálfrátt: “Eg tek að mér verkið og veiti þér lið á meðan leikurinn endist.” G. G. Meira.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.