Sameiningin - 01.10.1935, Blaðsíða 11
157
maður eklci tillit til vitnisburðar fortíðarinnar, vitnisburðar
kirkj usögunnar.
Fyrir 50 árum aðeins, voru ekki nema 428 kristniboðar
að starfi í Kíína, en tala safnaðarmeðlima 22 þúsundir. Nú
eru kristniboðarnir a. m. k. 15 sinnum fleiri, eða nokkuð á
7. þúsund, og tala safnaðarmeðlima a. m. k. 20 sinnum hærri
en fyrir 50 árum.
Þess má og geta, til samanburðar, að á fyrstu 100 árum
kristninnar í Rómaveldi, höfðu einu sinni ekki áunnist svo
mikið sem eitt hundrað þúsund áhangendur. En eftir fjórar
aldir hafði þó kristna trúin útrýmt öllum öðrum trúarbrögð-
um. Sé nú árangur kristniboðs frumkirkjunnar fyrstu 100
árin borinn saman við 100 ára árangur trúboðsins í Kína, þá
eru allar líkur fyrir að Kína verði kristnað á 4 öldum.
“Látum o'ss því og, þar sem vér erum umkringdir af
slíkum fjölda votta, létta á oss allri byrði og viðloðandi synd,
og þreytum þolgóðir skeið það, sem oss er fyrirsett.”
Frá Kína : Sögur og siðvenjur — Illir andar.
Kínverjar trúa því yfirleitt, að illir andar séu alstaðar
á kreiki, einkum þó þegar rökkva tekur á kvöldin. Menn hafa
fundið upp á ýmsum brögðum til að verjast heimsóknum
slíltra gesta. Eitt helzta ráðið er að hlaða veggspotta rétt
• fyrir framan anddyri íbúðarhússins, fyrir þverar dyr, og er
það algengt. Með því móti er séð fyrir að andarnir ani ekld
heint inn.
Kxnverjar trúa því nefnilega að illir andar geti ekki vikið
til hægri eða vinstri, geti ekki breytt um stefnu, en haldi æfin-
lega sömu leið sér og öðrum til tortímingar.
—Þessu líkt er og um illar siðvenjur. Til þess benda
t. d. ýms orð í málinu, svo sem “vanaskepna,” “vanaþræll,”
vanasynd.” En flestar syndir mannanna eru vanasyndir.
Því sagði Jesús: “Sannlega, sannlega segi eg yður, sérhver,
sem syndina drýgir, hann er þræll syndarinnar.”
Vegur syndarans er líkastur tröðunum gömlu, sem ekki
varð komist upp úr. Menn sem eru á þeim vegi gætu tekið
sér orð Jobs í munn: “Og eg fer burt þá leiðina, sem eg sný
aldrei aftur.”
Mönnum er þó gefið fram yfir skepnurnar, og illa anda,
að geta hafnað og kosið, sjálfsákvörðun. Og fyrir áhrif Guðs
heilaga anda, finst ekki sá maður, er ekki geti séð að sér,