Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.10.1935, Page 14

Sameiningin - 01.10.1935, Page 14
160 fyrir vini sínum af hjarta, og með öllum andlegum styrkleik, sem honum var gefinn. Síðan mælti hann: “Eg lét ekki af að biðja fyr en Guð varð að láta tilleiðast að veita mér bæn mína. Eg varpaði byrði minni að náðardyrum Guðs; fylti eyru Hans með öllum Hans eigin loforðum í heilagri ritningu, sem mér gat hugsast. Hann varð að láta mig þreifa á óskeik- ulleik þessara loforða, ef eg átti að trúa þeim.” Lúter tók í hönd vinar síns og mæiti: “Vertu hughraust- ur; þú munt ekki deyja í þetta sinn, vinur minn. Treystu Guði af öllu hjarta, sem er megnugur bæði að svifta mann lífinu og gefa það, og særa og græða.” Til mikillar gleði og undrunar öllum tók nú Melanlcton að hressast. En ekki hrökk honum orð af munni fyrir all- langa stund, þar til hann mælti til Lúters og bað að hindra sig ekki á ferðinni, því hann væri á góðri leið; kvaðst hann ekki kjósa annað fremur en að fá að yfirgefa heiminn, ekkert hlutskifti tæki því fram. En Lúter aftók það með öllu og sagði að enn yrði hann að þjóna Guði hér um stund. Lúter færði honum að borða og lézt myndi bannfæra Filippus, ef hann vildi ekki neyta þess, sem fram var boðið; borðaði hann lítið eitt. Tólc hann nú að hressast með degi hverjum og náði fullum bata. Virðist enginn vafi á því, að Melankton hefði dáið í þetta sinn, hefði bæn Lúters ekki orðið til þess að leiða hann aftur til heilsu. Árið 1557 misti Melankton konu sína. Hafði hún reynst í hvívetna hin mætasta eiginkona og sönn meðhjálp í öllu. Varð Melankton að orði, er hann frétti lát hennar, því hann var að heiman þegar dauða hennar bar að: “Far þú í friði, eg mun fylgja þér bráðlega.” Þráði Melankton nú mjög að fá að deyja. Fjöldi vina hans höfðu verið kallaðir burt. Melankton hafði háð stríð við vini og óvini um þrjátíu ára skeið og var saddur lífdaga fyrir löngu síðan. Fáum vikum fyrir andlát sitt skrifaði hann vini sínum: “Mig sárlangar til þess að fá að fara héðan.” Að honum látnum fundust hugleiðingar um dauðann, sem hann hafði skrifað skömmu fvrir dauða sinn, á þessa leið: “Sannindi, sem ættu að draga úr ótta fyrir dauðanuin: “Þú frelsast frá synd og frekjulegum deilum guðfræð- inganna. “Þú færð inngöngu inn í Ijósið. Þú munt sjá Guð.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.