Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1935, Síða 16

Sameiningin - 01.10.1935, Síða 16
162 tilsögn fengið í kristindómskenslu; kenslutækin ófullkomin og alls ekki við hæí'i barnanna; skólasóknin ákaflega slitrótt og óregluleg. Skólatíminn alt of stuttur; ekki nema fjörutíu klukkustundir á ári að meðaltali fyrir hvern nemanda, eða minna en það; og varla meir en helmingur af þeim tíma, eða tæpar tuttugu stundir á ári, gangi til sjálfrar kenslunnar. Markmiðið óljóst eða í lausu lofti venjulega; lítið gengist eftir því, hvort börnin hafi náð einhverju vissu þekkingar- eða þroskastigi við enda hvers slcólaárs. Mikill þorri barnanna fari í gegnum sunnudagsskólann án þess að læra nokkuð að marki eða komast í verulega náin kynni við kristna trú. Flest af þeim komi aldrei framar í kirkju, þegar þessari skólatíð þeirra sé lokið.—Hvort sem lýsingin er að öllu leyti sanngjörn eða ekki, ])á er lítill vafi á því, að frú Bro hefir bent hér á margt, sem stendur til mikillar umbótar í sunnudagsskóla starfinu víðast hvar hjá Mót- mælendum. ★ * * Nokkrir prestar í New York bundu með sér félagsskap að hætti verkamanna fyrir fjórum árum, og nefndu Min- isters’ Union. Mun það hafa verið í fyrsta skifti, að verka- mannastúka var stofnuð í þeirri stétt. Tilgangur félagsins var þó ekki sá, sem venjulega skipar öndvegið í samtökum verkamanna—að tryggja félagsmönnum hærri laun eða betri vinnukjör. Þessir geistlegu menn voru allir alþýðuvinir og háru velferð vinnulýðsins fj'rir brjósti. Þeir bjuggust við að geta unnið þeim málefnum meira gagn með því að hafa sjálfir hliðstæða félagsskipun í sínum hópi. Nú eru yfir sjötíu andlegrar stéttar menn gengnir í stúkuna, þar á meðal nokkrir Gyðinga rabbínar og Svertingja-prestar, kennimenn úr ýmsum kirkjudeildum Mótmælenda, einn eða tveir prestaskóla kennarar, og ritari prestafélagsins mikla, Fed- eral Conncil of the Churches.—Stúkan sótti nýlega um inn- göngu í vinnulýðs-sambandið American Federation of Labor, og er engin ástæða til að ætla það, að prestarnir þurfi að vera eins og framandi menn í þeim hópi, því að þar er ekki all-fátt af “hvítkragafólki” fyrir. Umsóknina studdu vinnustúlcur kennara, prentara og “músíkanta”, og líklega stendur fátt í vegi fyrir jáyrðinu. * ★ ★ Félagið International Missionary Council hefir tekist á hendur að stofna leikmyndastöð nálægt Tanganikavatni í Mið-Afríku. Leikendurnir verða innfæddir blökkumenn að

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.