Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.11.1918, Side 11

Sameiningin - 01.11.1918, Side 11
265 pá hleypur alt í einu ein þjóð fram og haslar sér völl til orustu við heiminn. Meir en mannsaldur hafði hún verið að hervæðast og búa sig undir, — að færast í ásmegin og spenna sig megingjörðum, svo að hún gæti boðið heiminum byrginn og lagt hann alian undir vald ægishjálms síns. Fræðimenska hennar öll, guðfræði sem önnur fræði, stuðlaði að því, að hún leit á sjálfa sig sem ofur-þjóð (super-þjóð) heimsins, heil- brigðustu jþjóðina og mestu að öllu atgerfi, bæði andlega og líkamlega, útvalda af Guði til þess að vera yíir-þjóð heims- ins. Og fram á völlinn ryðst hún og rýfur heimsfriðinn und- ir yfirskini jþví, sér til réttlætingar fyrir sjálfri sér, að þetta sé gert 'til eflingar heilbrigðri menning í heiminum, og til að auka heilbrigt mannkyn og byggja heimtnn þýzkum ofur- mennum, en losa hann við úrkynjuðu úrþvættin, sem aðeins væru itlkynjuð æxli á þjóðMkamanum. Á honum þyrfti að gera holdskurð og skera æxlin af, isvo að ekki aliur líkaminn sýktist. Hún var holdskurðarlæknir heimsins. Allur upp- skuðrur væri henni leyfilegur, hvernig svo sem hann liti út í augum þeirra, sem skera ætti á, — hvað djúpur og hvað sár, —ef hann aðeins gæti orðið heiminum til lækningar; og það yrði 'hann, ef hún, ihin al-heilbrigða þjóð, með hina al-heil- brigðu menning, gæti orðið ofan á og 'efst og æðst í heimin- um. Um annað þyrfti ekki að hugsa, og tillit til annars þyrfti ekki að taka, en til þess eina, að þessu takmarki yrði náð. Sögunnar dómur mundi sýkna hana af því, sem hún yrði sökuð um af óvinunum. Við öðru mætti ekki búast af hálfu þeirra. par sem menningarstig þeirra væri isvo miklu óæðra, þá væri ekki af þeim heimtandi að þeir skoðuðu hlut- ina frá hinu háa menningar-sjónarmiði pjóðverjans. Nokkrar þjóðir eru á bandi pjóðverja, til þess að vinna að þessu verki, að hjálpa þeim til þess að — frelsa heiminn. Meðal þeirra er Tyrkinn! En heimurinn vildi ekki við það kannast, að pjóðverjar, með aðstoð Tyrkjans t. d., væru útvaldir af Guði til þess að frelsa hann, né það væri skylda heimsins, að því er keisarann þýzka snertir, allra auðmjúktegast “to crown him Lord of all”, en að öðrum kosti að láta silátra sér sam sauðfé að vilja hans — heiminum til heilsubótar og þjóðverjum til heiðurs! Vegna þess urðu samtök með þjóðum gegn pjóðverjum. Hafa þau' samtök orðið æ meiri og æ sterkari. En samtök þessi og samvinnan, er hér hefir orðið svo mik- il og góð, hefir orðið til þess að hugir manna hafa nú leiðst meir en nokkru isinni áður til sameiningar og samvinnu. Nú er hugsjónin sú komin 'hátt á loft með mönnum, að hver þjóð

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.