Sameiningin - 01.11.1918, Page 34
288
í niöurlagi fertugasta og sjötta kapítula er sagt frá fundum þeirra
feðganna. “Nú vil eg glaður deyja”, sagði Jakob, “fyrst eg hef séö
auglit iþitt, að þú ert enn á lífi.” Jósef ráöiagöi föður sínum og
bræðrum a'S kannast yi'5 það i áheyrn Faraós, aö þeir væru fjárhiröar,
svo að þeir fengi aö búa út af fyrir sig í Gósen, því að Egiptar litu
mjög niður á hjarömenn og vildu sem minst hafa saman við þá að
sælda. Ræktarsemi Jósefs við aldraðan föður er fögur og lærdómsrík.
Jósef er mikils metinn valdsmaöur, næstur að tign konungi þeim,
sem sjáifsagt hefir verið taiinn-mestur þj'óðhöfðingi á Austurlöndum
í þá daga. Þó skammast Jósef sín ekki fyrir föður sinn, heldur leiðir
hann fyrir konung. Ef þú skamnmst þín fyrir föður og móður, þá
óvirðir þú þinn eigin uppruna, kastar .slcugga á sjálfan þig. Þú telur
mentun þína og siðfágun mikilsvirði, en af þeim kostum bera þó eins
og gull af eiri ástin og sjálfstjórnin hjá foreldrum þínum, sem- vörðu
lífi og kröftum.i það að gefa þér glæsilegri lífskjör en þau áttu sjálf.
Þ'aS er eitthvað mesta gæfumerkið, sem til er, að.heiðra föður og
móður ffjórða boðorðið) jversta ógæfumerki að sýna þeim fyrirlitn-
ing fOrðskv. 30, 17). En rækt viö föður og móður er ekki að eins
gæfuvegur, það er ilán í sjálfu sér, að mega sýna þeim ást og umönnun
á elliárunum. Versta böl lífsins er einstæðingsskapurinn — aö hafa
með -eigingirninni sli-tið af sér öll vináttubönd og standa svo einn uppi.
Og ræktarleysi við föður og móður er skýrt merki slíkrar einangrunar
— Jakob kemu-r vel fram í viðurvist Egiftakonungs. Hjarð-maðurinn,
lítt mannaður á þessa heim-s vi-su, er látlaus og hógvær, -en þó einarð-
,ur, framimi fyrir hinum glæsilegasta konungi þeirrar aldar. Sá sem
hefir lært að um-gangast Guð svo vel sé, verður varl-a til stórrar mink-
unar frammi fyrir men-skum faöfðingja.
Verkefni: 1. Dvöl Jakobs í Kanaan. 2. För han-s ti-1 Egiftalands.
3. Eandið Gósen. 4. Menning Bgipta á þeirri tíð. 5. Jakofa fram-mi
fyrir Faraó.
Yfirlit yfir ársf jórðunginn.
Vér höfum nú farið yfir -helztu atriöin í -sögu ættfeðranna þriggja,
A-brahanms, ísaks -og Jakobs. Köllun Abrahams er upp-haf þeirrar
sögu. Tilgangur Drottins með þeirri köllun, fyrirheitiö, sem hann
gaf Abraham, og -handleiðsla hans í samræmi við þann tilgang er þráð-
urinn, -sem knýtir -sö-gurnar saman í eina heild.
Margar persónur koma fram á sjónarsviðið. H-ver með sínum
sérkennu-m: Abraham, Bot, ísak, Rebekka, Jako-b, Esaú, Júda, Jósef.
Gef einkenni þeirra og hvaS læra má af þeim, ti-1 eftirbreytni eða
viðvörunar.
Allar sögurnar fluttu oss sérstakar lexíur, sem góðar voru og
nauðsynlegar fyrir líf vort -hið daglega. Tel þær upp.
“SAMEININGIN” kemur út mánafiarlega. Hvert númer tvær
arkir heilar. VerS einn dollar um árifi. Ritstjóri: Björn B. Jónsson,
659 William Ave,, Winnipeg Canada. — Hr. Jón J. Vopni er féhirfiir
og ráfismafiur "Sam.”—Addr. tSameiningin, P. O. Box 3144, Winnipeg
Manitoha.