Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1922, Blaðsíða 3

Sameiningin - 01.07.1922, Blaðsíða 3
amwiungíit. Mánaðarrit til stúðnings kirkju og kristindómi íslendiv)', gefið út afhinu ev. lút. lcirkjufélagi Isl. í Vestrheim-* XXXVII. árg. WINNIPEG, Júlí 1922 No. 7 Frá kirkjuþingi. I’ að var haldiö, sem kunnugt er, í Dakota, dagana 21.— 27. júní. Aldrei hefir hin fagra bygö íslendinga í Dakota verið dýrlegri á að lita, en nú var hún. Akrar og engi i hásumar- skrúöi svo dásamlegu, aö gestir störöu á undrandi. Notuöu margih frístundir til aö skjótast í hraðskreiðum bifreiðum bænda víð'svegar út um sveitina og ekki sízt upp á “fjalla- brúnir” vestan bygðar. Gunnar haföi Hlíöina aldrei svo fagra litið. og gat ekki slitið sig frá henni. Svipuð hrifning gagn- tók þá, er horfðu af hæðunum skógiskrýddu austur yfir Gardar- sléttlendið og Mountain-víkina. Og fólkið var svo gott og elskulegt. Það var eins og bygðarbúar allir hefðu tekið 'höndum saman um, það, að gera gestum sínum heimsóknina ánægjulega. Ekki að eins fólkið i söfnuöum þeim, sem í kirkjufélaginu standa, heldur og fólk hinna safnaðanna engu síður, virtist hafa lagt til síðu alt annað en það éitt, að taka á móti gestunum, .gleðja þá, og gleðjast með þeim. Allar samkomur voru afar-fjölmennar, hvar sem þær voru haldnar í bygðinni. Auk guðsþjónustu þeirrar, er flutt var að Gardar í þing- byrjun, miövikudaginn 21. júní, voru guðsþjónustur fluttar sunnudaginn 25. júní samtímis i sex kirkjum og var húsfyhi alls' staðar. Að kvöldi þess sama dags var haldinn trúmála- fundur í kirkju Vklalíns-safnaðar, og var þar svo mikill mann- fjöldi samán kominn, að ekki meir en helmingur komst fyrir í kirkjunni, og var því haföur annar fundur úti undir beru lofti samthnis fundinum inni í kirkjunni. Fyrirlestrar tveir voru fluttir á þinginu. Flutti séra Jóhann Bjarnason annan á Gardar fimtud.kvöld 22. 'júní, er það erindi prentað í þesstt blaöi. Hinn fyrirlesturinn, um UfsskoSanir,

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.