Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.07.1922, Qupperneq 7

Sameiningin - 01.07.1922, Qupperneq 7
199 8. grein: Fyrir “ef einhver hlutaSeigandi æskir”, komi: “ef 'hlutaöeigendur æskja”; og oröin “samkvæmt n. grein” falli burt. ii. grein falli burt. 14. grein: Síöari hluti hljóöi svo: “Söínuður, sem á lög- mætum safnaðarfundi samþykkir aö ganga úr kirkjufélaginu, tilkynni þaö forseta og skal hann skyldur til aö viðurkenna úr- sögnina.” Annað i greininni óbreytt. Yfirlýsing. 1. Með því aö æskilegt er, aö ráöin yröi bót á þeirri sundrung, sem; kirkjumálin hafa valdið út um bygöir íslend- inga vestan hafs; 2. Meö því aö tilhlýðilegt er, að þeir, sem af sama bergi eru brotnir kirkjulega og þjóöernislega, og hvorki vilja glata lúterskri kristni né íslenzku þjóöerni, eigi sameiginlegan kirkju- félagsskap, er standi í sem nánustu sambandi og unt er við hina lútersku þjóökirkju íslands; 4. Með þvi að það er sájflsögð skylda sérhvers kristins manns aö ránnsaka ritninguna og önnur kristindóms-atriði; 5. Meö því aö hugsana- og samvizkufrelsi hefir ávált veriö sögulegt eínkenni lúterskrar kirkju, ■— lýsir þingið yfir því: 1. Aö þaö viðurkennir hungsana- og samvizku-frelsi allra manna. II. Aö þáö vill^fúslega viöurkenna í samfélagi við sig hvern þann söfnuð, sem í hjartans einlægni vill fylgjast með í félagsskap og starfi þess í anda kirkjufélagslaganna. III. Meö þessu falli úr gildi öll ákvæöi áöur gjörö, er kynnu aö koma í bága við yfirlýsingu þessa. Á kirkjuþing aö Mountain, N.Dak., 23. júní 1922. N. S. Thorláksson, G. Guttormsson, J. Jóhannesson, Rúnólfur Marteinsson. iS. S. Einarsson.” Nefndin lét það álit sitt í ljós, aö ef áfram sé haldið geri hún sér von um, að fult samkomulag fáist, og lagöi til aö nefnd sé kosin til aö halda málinu áfram á næsta ári. Nú með því aö augljóst var, aö mikill meiri hluti þingmanna var þess mjog fýsandi, aö samkomulag fengist þegar á þessu þingi, var nefnd-

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.