Sameiningin - 01.07.1922, Qupperneq 6
198
“Yfirlýsing.
1. ’MeS því aS æskilegt er, aö ráöin yrði bót á þeirri
sundrung, sem kirkjumálin hafa valdiS út um bygöir Islend-
inga vestan hafs;
2. Með því að tilhlýSilegt er, að þeir, sem af sama bergi
eru brotnir kirkjulega og þjóðernislega, og hvorki vilja glata
lúterskri kristni né ísl. þjóðerni, eigi sameiginlegan kirkjufé-
lagsskap, sem standi í sem nánustu sambandi við hina lútersku
þjóðkirkju íslands;
3. Með því að lútersk kirkja þéssa lands, sem áður var í
mörgum pörtum, er nú að renna saman í stærri heildir;
4. Með því að ekki er hægt að ganga fram hjá rannsókn
ritningarinnar og öðrum rannsóknum, sem kristindóminn
snerta;
5. Með því að hugsana- og samvizku-frelsi hefir ávalt
verið sögulegt einkenni lúterskrar kirkju;
Lýsir þingið yfir því, að samkvæmt grundvallarlögum
kirkjufélagsins eigi hver sá söfnuður fullkomlega rétt á
sér innan Hins ev. lút. kirkjufélags íslendinga í Vestur-
heimi,
I. Sem trúir að Jesús Kristur og fagnaðarerindi hans sé
grundvöllur trúar og lífernis;
II. Sem hefir i heiðri játningar lúterskrar kirkju og kristn-
innar í heild sem mikilvæg söguleg skilríki;
III. sem vill tileinka sér Guðs orð og notfæra það í anda hinn-
ar ev. lút. kirkju.
Með þessari yfirlýsingu falla hér með úr gildi þær kirkju-
þings samþyktir, sem áður kunna að hafa verið gerðar og koma
í bága við yfirlýsingu þessa.
Gardar, 23. júní 192.”
fSömu nöfn og standa undir tillögunni um breyting
á grundvallarlögum)
Nefnd kirkjufélagsins haföi ekki aS öllu leyti getað fallist
á tillögur þessar, og hafði samiS hliðstæðar tillögur á þessa
leið:
“Frumvarp til grundvallarlaga-breytingar.
4. grein: Kirkjufélagið játast undir hinar Almennu trúar-
játningar kirkjunnar, ásamt hinni óbreyttu Ágsborgarjátningu
og Fræðum Lúters. En það setur þó ekkert af þessum ritum
jafnhliða heilagri ritningu.