Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.02.1918, Side 5

Sameiningin - 01.02.1918, Side 5
355 þessi rödd, þessi vitnisburður föðurins: Þú fer, elsku barnið mitt, lit á þessa kvalabraut til þess að gera nafnið mitt dýrlegt, gera það dýrlegt um allar aldir um allan heim. Fólk það er viðstatt var heyrði rödd þessa, en það hélt að komið hefði þruma. Svo ólíkt heyra menn, eftir því, sem á stendur fyrir þeim. Jesús heyrði blíða föður- rödd og dýrðartal. Sú sama rödd var liinum ekki annað en reiðarþruma. Hvílíkt tákn þess sannleika, hvernig friðþægingar píslir Jesú eru og verða mönnunum annað- hvort opinberun æðstrar Drottins dýrðar, — þeirn, sem trúa, og heyra fyrir friðþæging frelsarans föðurinn tala við sig kærleikans dýrlega tal; eða þá þrumudómur, — þeim, sem ekki trúa, ekki heyra, ekki finna föðurást Guðs í friðþægingu sonar hans. Enda var Jesú það ljóst, að nú var dómur að ganga yfir heiminn, að með fitför hans í píslirnar byrjaði dagur hins mikla dóms. Iíann segir: “Nú gengur dómur yfir heim þennan; nú skal höfðing-ja ]>essa heims kastað út; en er eg verð hafinn frá jörðu, mun eg draga alla til mín”. Dómur—sýknunardómur þeim, sem iðrast og trúa; dauðadómur þeiin, sem halda í syndinni áfram að hafna náð Guðs, — um það vitnar krosspína Jesú; á það minnir fastan alla, er eyru liafa að heyra. Betlehem og Jerúsalem. Sigurvinning'ar Breta á Gyðingalandi hafa að sjálf- sögðu fengið lesendum vorum mikillar gleði, mitt í ógnum og hörmumgum ófriðarins. pað hlýtur að vera flestum þjóðhollum kristindómsvinum í hópi vorum meira en lítið fagnaðarefni, að vita nú af heilögum sögustöðum á þessari fósturjörð trúar vorrar—Hebron, Betlehem, Jerúsalem og öðrum fleiri—komnum að síðustu í kristnar hendur og undir yfirráð þess ríkis, sem vér sjálfir heyrum til hér í Kanada. Kristnir menn hljóta ætíð að hugsa til þeirra stöðva með viðkvæmni og heilagri lotning, því þær eiga ættlands-ítök í hjörtum vorum. Að lesa um þær er alla jafna hugnæmt og uppbyggjandi; en þó hefir sjaldan átt betur við að virða fyrir sér þessa dýrmætu helgistaði heldur en einmitt nú,

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.