Sameiningin - 01.02.1918, Qupperneq 7
um þorpið og reisa þar hæli allmörg eða sæluhús fyrir píla-
gríma. Önnur kirkja, “fæðingarkirkjan” svo nefnda, var
reist í Befclehem fyrir tólf hundruð árum og stendur enn.
Tvær deildir kaþólskunnar, sú rómverska og sú gríska, eiga
sitt klaustrið hvor fast við kirkjuna, og Armeningar það
þriðja. Húsaþyrping þessi er líkusfc' veglegum kastala til
að sjá. Kirkjan sjálf er stórt hús og tígulegt, með þykkum
veggjum úr marmara, sem fæst þar í grendinni, en bitar og
sperrur úr sedrusviði frá Lebanon. f berginu eru nokkrir
hellar, þar sem kirkjan stendur yfir. Guðshús þetta heyrir
til þrem kirkjudeildunum áður nefndu. J?ær eiga þar sitt
altarið hver og flytja messu hver á sínum tíma eftir sam-
komulagi. Inn úr þessum þrefalda helgidómi gengur mar-
mara-rið niður í “Fæðingar-helli” svo nefndan. ]7ar á frels-
arinn að hafa fæðst. Hellir þessi er tólf fet á hælð og breidd
og gengur rúm fjörutíu fet inn í bergið. Hann er lýstur
upp með þrjátíu og tveimur logagyltum lömpum. Marmara-
hellur alíavega litar eru feltar í gólf og veggi til prýðis.
Stjarna úr silfri er greypt í bergið í veggskoru að austan-
verðu, lýst af fimtán lömpum. f annari skoru í vesturveggn-
um stendur jatan — úr marmara! Fjórar stúkur aðrar eru
í hellis-veggjunum, helgaðar vitringunum, Jósep, Betlehems-
bömunum, og Híeronýmusi hinum helga, þeim er þýddi ritn-
ingarnar á latínu. Hann hafðist við árum saman á þessum
stöðvum. Hellirinn ber þess merki, að hann hefir verið
stækkaður af manna höndum. Pílagrímar streyma til
kirkju þessarar í stór-hópum á hverju ári.
Betlehem telur átta þúsund íbúa. Flest er það kristið
fólk, úr báðum deildum kaþólsku kirkjunnar. par eru um
tvö hundruð mótmælendur. Bæjarbúar þykja bera mjög af
öðru fólki á Gyði-ngalandi, sem flest er Múhameðstrúar. peir
eru iðjusamir, framgjamir, klæðast vel og bjóða af sér góð-
an þokka. Bæði kaþólsku klaustrin halda uppi bamakenslu.
Arabskur mótmæilendasöfnuður er í Betlehem — um tvö
hundruð sálir. Hann er ávöxtur þýzkrar trúboðsstarfsemi,
sem hafin var þar fyrir sextíu árum. Söfnuðurinn á kirkju-
vandaða og fagra, sem pýzkalandsdrotning lét reisa fyrir
hann árið 1897. Nokkrir skólar heyra trúboðsstöð þessari
til, svo og hæli fyrir munaðarlaus börn af armenskum ætt-
um. Sænskir lúterstrúarmenn eiga þar sjúkrahús, og trú-
boðsfélag eitt á vegum ensku kirkjunnar hefir nýlega komið
þar upp skóla fyrir innlend stúlkuböm. Betlelhem er ein-
hver fegursti bærinn á Gyðingalandi, hreinlegur og mjög
aðlaðandi. -----------