Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.02.1918, Page 15

Sameiningin - 01.02.1918, Page 15
365 hefir með höndum, og sem gerir honum unt að klæðast “purpura og dýrindis líni”. En á fyrsta sunnudegi prestsins í nýju sókninni, eru líka margir aðrir viðstaddir, sem presturinn lærir að þekkja og elska því betur, því lengur sem hann vinnur með þeim. J7ó það sé tiltölulega hægt að skifta um prestaköll. meðan presturinn er ungur, þá verður það þó mjög erfitt, þegar árunum fjölgar og presturinn eldist. Margra ára dvöl hefir bundið hann og ihans traustum böndum, sem örðugt er að slíta í sundur. pað eru heimili, sem hann var daglegur gestur á. Margir staðir og endurminningar, sem binda hann við bæinn eða sveitina, þar sem starfsvið hans. liggur. Vinir hans sjá, að söfnuðurinn er að smá leysast upp, en vilja ekki særa tilfinningar þess, sem þeim er kær, með því að biðja hann að breyta til, — benda honum á, að heppi- legast sé að hann fari. — Mikið af baráttu í heiminum stafar af því, að umsjón- arstarf er gert að eigu þess, er umsjónina hefir á hendi. Og í þessu er fólgin ein af stórhættum prestsins. f byrjun prestsþjónustu sinnar gleðst ungi presturinn yfir því “að vera meðal þeirra sem þjónn”. En með vaxandi áhrifum í kirkju og utan hennar, verður sú breyting á, að í stað þess að gleðjast yfir verki þjónsins, nægir prestinum ekki minna en það, að stjórna öllu, ráða öllu. Hann er ekki lengur starfandi fyrir fólkið, heldur það fyrir hann. Hann stærir sig af afreksverkum sínum, og er hugsjúkur yfir því, að valdi sínu fari hnignandi. Einu sinni var hann hirðir, sem leitaði að þeim týndu, kallaði þá með nafni og leiddi í græna haga. Nú er aðailstarf hans orðið að rýja sauðina og gera afurðina að markaðsgengri vöru. pegar þessi sjúkdómseinkenni fara að koma í Ijós, þá fer hygginn prestur að leita, eftir gæzlustarfi hjá annari hjörð. II. Kostir langrar þjónustu prests hjá sama söfnuði. Eftir Newton H. Rosei-s, prest í Brookville, Ohio. pýtt af séra Sigiirði ólafssyni. Hverjir eru aðalkostimir við það, að prestur þjóni sama söfnuði um langan tíma?

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.