Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.02.1918, Qupperneq 17

Sameiningin - 01.02.1918, Qupperneq 17
367 sem bezt þörf safnaðarins. Hann þroskast með söfnuði sínum. Hjarta hans styrkist. Grundvallaratriði trúarinnar verða æ ljósari og hærri, og hann verður traustari leiðtogi, leiðtogi sem lærir að þekkja leyndardóma guðsríkis. Og söfn- uðurinn lærir að virða þekkingu 'hanis, sem er bæði sönn og holl og óhætt er að treysta. Prestur, sem þjónar lengi sama söfnuði, þroskast ekki eingöngu að þekkingu, heldur fara áhrif hans sí-vaxandi. Misskilningur er það, að halda að maður þurfi að búa á mörgum stöðum, helzt í stórborgum, til þess að þekkja fólk og kynnast hugarfari þess. pað eru til eins mörg sýnis- hom af mannlegum tilfinningum í Brookville eins og í Chicago, þó stéttir manna séu ekki eins margar, og ástandið ekki eins breytilegt. Eg hefi jafnmörg tækifæri til að þekkja fólk og innræti þess, eins og prestur, sem þjónar söfnuði í New York; og fólk, sem býr í smáþorpi eða bæ, eða úti í sveit, er eins opið fyrir áhrifum og hefir þroska- hæfileika, ekki síður en stórborgar fólkið. Spumingin er því ekki um starfsviðið, heldur tíma til að kynnast fólki og þekkja það. En slík þekking kemur smám saman og er hægfara. Að læra að þekkja fólk tekur langan tíma. Einkenni fólks koma betur í ljós með langri þekkingu, en sú þekking er nauðsynleg, eigi presturinn að ná tiltrú safnaðar síns og vera hæfur að þjóna honum. Fullvís er eg um það, að prestur, sem hefir þjónað söfnuði í fimtán ár, er betur hæfur til að þjóna honum áfram, og meiri árangur yrði af starfi hans, heldur en af starfi óþekts manns með sömu hæfileikum. Og það veit eg, að sá prestur, sem hefir þjónað söfnuði í fimtán ár, er fær- ari um að hefja starf hjá öðrum söfnuði, heldur en annar maður, er á sama tímabili hefir haft þjónustu hjá fimm mismunandi söfnuðum. Löng þjónusta í sama prestakalli hefir og það ágæti í för með sér, að presturinn þroskast, er hann reynir af fremsta megni að mæta brteytingum þeim, sem verða í prestakalli hans, og í félagslífi því, sem hann vinnur með. Ekki má ætlast til þess, að þær aðferðir, sem blessast í einum söfnuði, komi að tilætluðum notum í öðrum. Ollir því einatt mismunandi þroskaástand safnaða, eða aðrar ástæður. Ástand safnaða og kringumstæður eru mismunandi, en að þekkja og skilja í hverju sá mismunur er fólginn, tekur langan tíma að skilja til hlítar. Og breytingar eiga sér líka stað, þó í sama prestakalli sé. Sumar þær aðferðir, sem voru

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.