Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.02.1918, Side 18

Sameiningin - 01.02.1918, Side 18
368 heppilegar í safnaðarstarfi á fyrstu prestskapar-árum mín- um, eiga ekki lengur við, þó í sama söfnuði sé, það er að segja: grundvöllurinn er hinn sami, en aðferðin er breyting- um háð. pannig hefi eg lært, að samlaga mig breytingu þeirri, er síðari ár hafa flutt með sér. Fyrir langa þjónustu í sama söfnuði lærist prestinum betur að leiða hjörð sína og koma í framkvæmd með söfn- uði sínum því hinu ýmsa, sem miðar að því, að auka áhrif fagnaðarboðskaparins hjá sóknarbömum hans. — Langvarandi þjónusta í söfnuðinum kennir prestinum að hafa vald yfir tilfinningum sínum. Eg á ekki hér við að presti sé samboðið að beita brögðum eða undirhyggju, held- ur réttlátri dómgreind. Prestinum lærist, að vilji hann hafa varanleg og heilnæm áhrif, þá þarf hann ekki einungis að vera hugvitssamur einis og könguló, og iðjusamur eins og maurildi, heldur einnig ósaknæmur eins og dúfa, og vitur eins og höggormur. pví lengur sem prestur þjónar söfnuði sínum, því vand- lætingarsamari og kærleiksríkari verður hann, og því há- leitari verða áform hans. Nýr prestur á ekki erfitt með að safna að sér áheyrend- um. Eyru safnaðarfólksins hilusta á hann. Hann er maðui’- inn, sem mest er talað um í nágrenninu, í nokkra mánuði. Og fólkið þyrpist til að hlusta á hann. Svo er því ekki farið með prestinn, sem lengi hefir þjónað söfnuði sínum. Hann vekur ekki þá eftirtekt, sem nýr maður gerir. Hann hefir ekki augnabliks aðdráttarafl óþekts prests. Og verið getur, að sú hugmynd læðist inn í huga hans, að hann gerði betur að breyta til, að hann gæti komið meiru til leiðar annarsstaðar. En þetta er stundarfreisting, og allir vita að nýr sópur hreinsar betur — fyrst í stað, að minsta kosti. Forvitnin ein rekur fólk til að hlusta á nýjan prest, en forvitnin getur ekki dregið fólk til kirkju til lengdar. — En haldi fólk áfram að sækja kirkju, eftir að presturinn er orðinn kunnugur, þá er það sönnun fyrir því, að fólkið treystir honum sem kennimanni, og það er víst, að ekkert annað en trúmenska hans í kennimannsstöðunni, framkoma hans gagnvart fólki utan kirkju og innan gerir hann hæfan til að vera sendiboði frelsarans. Löng þjónusta prests í söfnuðinum gefur honum stöð- ugleika í öllum áformum hans — þroskar þolinmæði hans og skarpskygni. pegar prestur dvelur lengi í sama prestakalli, verð' -

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.