Sameiningin - 01.02.1918, Qupperneq 19
3G9
hann færari um að hindra ill áhrif utan að frá, bæði að því
er safnaðarfólkið og söfnuðinn sjálfan snertir. Hann reynir
að mæta breytingunum, sem tírninn og framrás hans flytnr
með sér. Hann vinnur ekki einungis fyrir yfirstandandi
tíma, heldur hugsar hann og um ókomna tíð, hvort sem það
er nú bygging nýrrar kirkju, eða viðgerð á kirkju safnað-
arins. Hann fylgist með framrás timans, breycingum í
starfi sunnudagsskólans og hvarvetna í kirkjustarfinu.
Hann hefir vakandi auga á hinum ungu. Hann kallar til
afturhvarfs hina breysku, og hann þreytist ekki ao benda
hinum brotlegu á rétta leið.
Með öðrum orðum, hann hugsar meira um framför og
vellíðan safnaðarbræðra sinna, en ágóða eða eiginn hag.
Merkismannatal.
Hitt og þetta um ýmsa mæta menn, helzt kirkjulega, menn, sem
margir eiga ekki kost á aö kynnast, en sem uppbyggilegt er aö vita
eitthva'ð um og þekkja.
Kftlr séra .Tóhann Bjarnason.
III.
Richard Baxter.
Riehard Baxter, prestur og rithöfundur, f. 12. nóv.
1615, í Rowton, Shropshire á Englandi. Er hann talinn með
hinum allra áhrifamestu og ágætustu kennimönnum sínnar
tíðar. Var frábær gáfumaður, eldheitur trúmaður og svo
samvizkusamur, að það einkendi allan æfiferil hans, bæði hin
kennimannlegu störf hans og eins þau, er snertu ýmiskonai'
önnur viðfangsefni.
Baxter var af góðum ættum. pó er sagt að faðir hans
hafi verið fremur óreglusamur framan af, en bætt ráð sitt til
muna eftir að hann kvæntist og honum fæddist þessi sonur.
Hugsaði hann sér snemma að koma drengnum til menta.
Ekki var það þó prestskapur, sem hann ætlaði honum. Fág-
að og þægilegt líf við hirð konungs var það, sem hann hafði
í huga. Komst sú fyrirætlan svo langt, að Baxter á unga
aldri fór með tiginbomum vinum föður síns til London og
dvaldi þar um tirna. Ekki gazt honum að ihirðlífinu. Hvarf
hann þá heim aftur, staðráðinn í að lesa guðfræði. Dó móðir
hans rétt um þetta leyti og er mælt, að það hafi mjög styrkt
hann í þessu áformi. Kyntist hann og um sama leyti tveim
ágætum kennimönnum, þeim Joseph Symonds og Walter
Cradock. Varð hann fyrir sterkum áhrifum frá þeim báðum.