Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.02.1918, Blaðsíða 20

Sameiningin - 01.02.1918, Blaðsíða 20
370 Eftir að Baxter var orðinn prestur, var hann lengstum sóknarprestur í Kidderminster í Worcestershire á Englandi. Var sá bær iðnaðarbær mikiil, vefnaðarverkstæði þar stór og unnu bæjarbúar flestir í þessum verksmiðjum. Drykkju- skaparöld var þá mikil. Bæjarbúar drykkfeldir, óupplýstir ruddar. Prestur sá og aðstoðarprestur, sem höfðu verið næstir á undan Baxter, voru báðir drykkjusvolar, og alt and- legt líf og kirkjuleg starfsemi í hinni mestu órækt. pannig var aðkoman, þegar Baxter kom til Kidderminster að taka þar við kennimannlegu embætti. Áhrif hins mikla og göfuga kennimanns komu fljótt í ljós. Kirkjan varð troðfull við helgar tíðir, sem áður hafði veríð nálega tóm. f stað þess að einstaka heimili sinti and- legum málum, varð sú breyting á, að aðeins einstaka heimili sinti þeim ekki. Ruddamir, sem áður höfðu verið, urðu kurteisir menn. Drykkj uskapurinn lagðist niður. Bærinn varð 'sem nýr bær. Svo mikið máttu sín tilraunir Baxters, að koma fólki til lifandi trúar og sæmilegs lífemis. pegar maður les um þau feikna áhrif, sem Baxter hafði á fólkið í bæ sínum og gætir jafnframt að því, sem sagt er um ræður hans, þá verður manni fyrst fyrir að hugsa, að það hafi verið alt annað en ræðumar, sem komið hafi um- bótunum til vegar. Ræðum hans er svo lýst, að þær hafi verið óvenjulega langar, lauslega bygðar og hirðuleysislega orðaðar. petta þrent er “fremur til viðvörunar en eftir- dæmis”, eins og einn rithöfundur kemst að orði. En þetta er ekki öll lýsingin. Baxter hafði undursamlega mikla hæfi- leika í þá átt, að sannfæra fólk um, að svona hlyti nú þetta og hitt að vera, eins og hann segði. Rökfærslurnar Ijósar og sterkar og brennandi áhugi lýsti sér í öllu, sem hann gerði utan kirkju og innan. Er og sagt, að Baxter sjálfur, sem annars var maður auðmjúkur og yfirlætislaus, hafi haft mikið traust á sjálfum sér, að sannfæra aðra um það, sem hann sjálfur fyrst var orðinn viss um að rétt væri og satt. pegar maður svo athugar, að honum var óvenjulega vel gefinn sá hæfileiki að fá aðra á sitt mál og eins það, hve mikil og göfug persóna hann var, þá getur maður vel skilið, að ræðurnar, meðal annars, hafi valdið þeim sterku og miklu áhrifum, sem Baxter hafði á fólk sitt og samtíð. Einn sið hafði Baxter, sem var all-einkennilegur. Hann var sá, að prédika einu sinni á ári svo “sprenglærða” ræðu fyrir söfnuði sínum, að enginn gat fylgt honum. Er mælt að hann hafi gert það til að sýna fólki, að hversdagsbragur-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.