Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.02.1918, Síða 22

Sameiningin - 01.02.1918, Síða 22
372 Karls konungs. Má vera að sumir hafi með þessu verið að reyna að koma sér í mjúkinn hjá syni hans, hinum nýja konungi, Karli öðrum. Baxter reyndi ekki að réttlæta líf- lát Karls konungs, en fór þó mýkri höndum um Cromwell en margir aðrir. “Góður maður, sem féll fyrir þungri freistingu”, var dómur hans um hinn einkennilega og mikla byltingamann. pað tekst stundum miður en skyldi, að dæma réttilega um menn, sem eru lifandi eða rétt nýhorfnir af sjónarsviðinu, en þessi ummæli Baxters um Cromwell eru ef til vill viturlegri og sanngjarnari en flest annað, sem sagt var um þennan stórfelda lýðforingja nýlátinn. Sem rithöfundur var Baxter fádæma afkastamikill. Ekki færri en 168 bækur og rit eru honum eignuð. Flest af bókum hans og ritum eru frá þeim árum þegar hann fékk ekki að þjóna, né jafnvel að prédika. Mörg deilurit eru eftir hann, nú gleymd fyrir löngu. Merkustu bækur hans eru taldar: “The Call to the Unconverted”, “The Reformed Pastor”, og “The Saint’s Everlasting Rest”. Baxter vildi láta trúað fólk gera málefni Jesú Krists meira að umtalsefni utan kirkju en gert væri. “Málefni Krists er stórlega hindrað með óverðugri þögn”, sagði hann. pessa feimni trúaðs fólks, að voga ekki að tala um náðar- boðskapinn við iþá, sem hirðulausir eru um sáluhjálp sína, vildi hann láta fólk læra að leggja niður. Má vera að sam- tíð vor, prestar og leikmenn, geti eitthvað lært af þessu. Heilsutæpur maður var Baxter alla æfi, en náði þó æði háum aldri. Andaðist í London 8. Des. 1691. Frá Japan, Skýrsla frá tniboða kirkjufélagsins. Eg vildi óska, aS eg gæti meS pennadrætti dregiS upp fyrir yður mynd af ástandinu og þörfunum 'hér í Japan! Þó aö eg hafi átt því láni að fagna, að virða þá mynd fyrir mér mánuðum saman, verður hún samt margbrotnari með degi hverjum. Eg sé meir og meir af einstökum atriðum lífsins í Japan. Og tækifærin til starfs virðast opnast svo ótt, að tungumálsnámið, sem á að vera aðaivið- fangsefni nýkominns manns, verður afar þreytandi. En hinsvegar, þegar maður horfist í augu við þessi tækifæri og sér hv'e nauösynleg tungumálskunnáttan er, verður námið töluvert létt'bærara. Eg ætía, til dæmis, að gefa ykkur yfirlit yfir starfsemi okkar auk tungumálanámsins. Alloft hefi eg talað á samkomum nemenda, venjulega á trúboðsstöð okkar, en stundum líka, eftir beiðni, á öðr-

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.