Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.02.1918, Side 28

Sameiningin - 01.02.1918, Side 28
378 Sp. Eru nokkrar líkur til þess, að Jesús meti auð og veraldar- tign meira nú á dögum, heldur en hann gjörði, meðan hann dvaldi hér í jarðneskum líkama? Sv. Nei. Jesús Kristur er hinn sami í gær og í dag og að eilífu JHeb. 13, 8J, en auður og veraldleg metorð hafa litið breyzt. Sp. Er ]iað ekki sama, að v'era samvizkulaus og að vera sálarlaus? Sv. Nei. Sál og samvizka er sitt hvað. Þó getur verið, að þær séu óaðskiljanlegar — að samvizkuröddin verði aldrei þögguð niður að fullu, meðan sálin er til. Sp. Getur nokkur maður bætt fyrir syndir sínar sjálfur, hvort sem þær eru margar eða fáar, stórar eða smáar. Sv. Enginn getur bætt svo vel fyrir jafnvel hið minsta brot. að það væri ekki bettir ógjört; um ])að vitnar samvizka vor berlega Ekki er heldur mögulegt að borga fyrir syndir með góðverkttm og kvitta fyrir þær á þann hátt, því vér rækjtim enga skyldn betur en skyldugt er. Syndugur maðttr getur því aldrei að eilíftt bætt fyrir brot sín sjálfur. Sp. Er nokkurt v'it í því að vilja sýnast annað en maður er? Sv. Nei. Slik háttsemi er annað hvort hræsni eða heigulskapur. Sp. Er ekki betra að vera og sýnast ekki en að sýnast og vera ekki. Sv. Ill-skárra, ef til vill; en al-rangt er það þó, og gagnstætt skýrttm boðunt Guðs orðs. Kristinn maðttr á bccði að vera og sýnast, Guði til dýrðar, auðvitað, en ekki sjálfttm sér. JSjá Matt. 5, 14-16; Róm. 10, 10: 1. Pét. 3, 3-4, og fleiri staðij. Sp. Hvers vegna heyra ekki allir ntenn, sem skapaðir ertt með eyrunum, raust hins lifandi og heilaga Guðs? Sv. Spurningin er óákveðin. Eigi spyrjandinn við raust Guðs í ritningarorðinu, þá verður svarið t tvennu lagi: Sumir heyra ekki. af þvt enginn hefir flutt þeim orðið fRóm. 10, 14), aðrir heyra ekki, þótt orðið hafi borist þeim til eyma, af því hjörtu þeirra eru forhert (Matt. 13, 11-15J. En sé hér átt við rötld Guðs hið innra í sálum vorum, eða í náttúrunni, þá er það sjálfsagt syndsamlegum sljóleik og hjarta-haröúð v'orri að kenna, ef vér heyrum hana ekki. En hafi annað dýpra vakað fvrir spyrjandanum. Þetta, sem sé: Hví herða menn þannig hjörtu sín mót orði Guðs, svo heyrandi heyra þeir það ekki? — sé þetta spttrningin, þá hefi eg ekkert fullnægjandi svar. Mannvitið hefir aldrei getað leyst úr þeirri ráðgátu. Sameiningin er fús til að leysa eftir föngum úr spurningum tvm trúarleg efni, sé þær í einlægni bornar fram, en ekki sprottnar af þrætugirni eða flysjungsskap. — Gott væri, ef spyrjandinn vildi útvega sér nýju þýðinguna, helzt vasaútgáfuna. Þótt sú þýðing sé auðvitað ekki gallalaus, þá ber hún langt af þeim eldri, bæði' að málfegurð og nákvæmni.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.