Fréttablaðið - 09.07.2011, Side 32

Fréttablaðið - 09.07.2011, Side 32
4 matur Við reynum að haga elda-mennskunni í samhengi við árstíðirnar og við það hráefni sem best er á hverjum tíma,“ segir Gísli. „Karfinn hentar vel á grill- ið, er hæfilega feitur og þéttur og losnar ekki í sundur. Hann er líka á skikkanlegu verði.“ Þeim hjónum er kappsmál að vita hvað þau láta ofan í sig og rækta sínar eigin kryddjurtir í chermoula- marineringuna sem ættuð er frá Norður-Afríku. „Hún er vinsæl á sjávarfang og kjúkling, ein- föld og ofboðslega góð með grill- uðum fiski. Svo finnst okkur gott að borða blöndu af villihrís- grjónum með karfanum. Það tekur lengri tíma að sjóða þau en bragðið á einstaklega vel við fisk. Þessi réttur er einfaldur, hollur og sumarlegur.“ Líf Gísla og Ingu snýst að stórum hluta um mat en þau vinna mikið af kynningarefni fyrir mat- vælafyrirtæki og hafa auk þess gefið út tvær matreiðslubækur saman. Þá er þriðja bókin væntan- leg í haust. „Það snýst allt um mat hjá okkur. Við tölum mikið um mat og fjöllum um mat og höfum mik- inn áhuga á hvaðan hráefnin koma. Við erum líka óhrædd við að prófa okkur áfram.“ - rat Sumarlegur karfi Hjónin Gísli Egill Hrafnsson ljósmyndari og Inga Elsa Bergþórsdóttir grafískur hönnuður hjá auglýsingastofunni Fabrikkuni eru mikið áhugafólk um matargerð. Þau grilluðu karfa í sumarblíðunni og ljóstruðu upp uppskriftinni. Gísli Egill Hrafnsson ljósmyndari og Inga Elsa Bergþórsdóttir, grafískur hönnuður, eru forfallnir matgæðingar og gefa hér lesendum uppskrift að hollum sumarrétti. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG Grillaður karfi í chermoula-marineringu. MYND/GÍSLI EGILL HRAFNSSON MARINERING 75 ml kóríanderlauf, gróf- söxuð 75 ml steinselja, grófsöxuð 2 hvítlauksrif, kramin ½ tsk. kummin, malað ½ tsk. paprika ½ tsk. sítrónupipar ½ tsk. salt ¼ tsk. cayennepipar 2 msk. ólífuolía 1 msk. sítrónusafi Maukið allt saman í mat- vinnsluvél. 500 g karfaflak með roði eða tvær vænar steikur sneiddar úr flakinu salt og pipar Hitið grill vel upp. Beinhreins- ið fisk og smyrjið mariner- ingu vel yfir hann á roðlausu hliðinni. Setjið fiskinn á grillið með roðhliðina niður og grill- ið við háan hita í 2-3 mínútur í lokuðu grillinu. Snúið fisk- inum við með spaða og klárið steikinguna á um það bil 2 mínútum. Hafið grillið lokað á meðan. Saltið og piprið eftir smekk. Einnig er hægt að grilla fiskinn í fiskiklemmu. KÖLD SÍTRUSSÓSA ½ dós sýrður rjómi klípa af kummin klípa af cayennepipar börkur af ½ sítrónu, bara guli hlutinn, fínrifinn börkur af ½ límónu, bara græni hlutinn, fínrifinn Hrærið lauslega saman. Berið fiskinn strax fram með soðnum villihrísgrjónum, kaldri sítrussósu, sítrónubát- um og salati. GRILLAÐUR KARFI Í CHERMOULA- MARINERINGU FYRIR TVÖ A S. 440-1800 www.kælitækni.is Okkar þekking nýtist þér ... Mylur alla ávexti, grænmeti klaka og nánast hvað sem er Hnoðar deig Býr til heita súpu og ís Uppskriftarbók og DVD diskur fylgir Vita Mix svunta og kanna fylgja með á meðan birgðir endast Blandarinn sem allir eru að tala um! Úðabrúsi 5L kr. 2.695 ALLTAF EITTHVAÐ NÝTT Verkfæralagerinn Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-17, sun. kl. 13-17 Bílaþvottakústar 2.995 Bílabónvélar 3 gerðir frá kr.4.995 12V Fjöltengi kr.1.995 Straumbreytir 12V->230V kr.7.995 Straumbreytir 230V->12V 3.985 12/24V Framlenging kr.999 Reiðhjólafestingar á kúlu F/2-hjól kr. 4.785 F/3-hjól kr. 9.760

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.