Fréttablaðið - 09.07.2011, Page 39
Forstöðumaður,
hópstjóri, vörustjóri...
Í kjölfar stefnu- og skipulagsbreytinga auglýsir Reiknistofa bankanna hf. nýjar stjórnunar-
stöður innan fyrirtækisins. Framundan eru spennandi verkefni sem miða að því að gera
Reiknistofuna að alhliða þjónustumiðstöð og fyrsta valkosti fyrirtækja á fjármálamarkaði,
til að nútímavæða og hagræða í sínum tæknirekstri.
Þjónustumiðstöðin veitir viðskiptavinum
eina gátt að allri þjónustu félagsins
og sér um prófanir á nýjum lausnum
og vöktun á öllum kerfum félagsins.
Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar er
einn af lykilstarfsmönnum félagsins, þarf
að vera framsækinn og traustur leiðtogi
og öðrum góð fyrirmynd.
Staðan heyrir undir forstjóra.
Í starfinu felst umsjón og ábyrgð með
vöruþróun, vefþjónustu og þjónustulagi
gagna. Um er að ræða stjórn á nýjum
hópi innan Hugbúnaðarlausna.
Staðan heyrir undir framkvæmdastjóra
Hugbúnaðarlausna.
Um er að ræða tvær hópstjórastöður
á Rekstrar- og öryggislausnasviði.
Hópstjóri Net- og öryggisþjónustu er
ábyrgur fyrir ytri sem innri nethögun
félagsins, með öryggi, áreiðanleika og
afkastagetu að leiðarljósi. Hópurinn
annast tölvurannsóknir, innbrota- og
vírusvarnir.
Upplýsingar veitir:
Guðbrandur Jónasson,
starfsmannastjóri,
í síma 896 3328.
Umsóknir ásamt kynningarbréfi
skal senda Guðbrandi Jónassyni,
gudbrandur@rb.is, fyrir 14. júlí nk.
Vörustjóri vefþjónustu og þjónustulags gagna á Hugbúnaðarlausnasviði
Hópstjórar á Rekstrar- og öryggislausnasviði
Hæfniskröfur
» Leiðtogahæfileikar og
stjórnunarreynsla
» Góðir samskiptahæfileikar
» Þekking á grundvallaratriðum
þjónustustjórnunar
» Gæðastjórnunarþekking
» Starfsreynsla sem nýtist í starfi
» Gott vald á íslensku
» Menntun á háskólastigi
Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar
Hugbúnaðarlausnir eru ábyrgar fyrir
nýsmíði, framþróun og viðhaldi á eigin
hugbúnaði fyrir fjármálafyrirtæki sem
og aðlögun, innleiðingu og þróun á
aðkeyptum stöðluðum hugbúnaði.
Sviðið þróar og aðlagar lausnir, bæði
fyrir opið umhverfi og stórtölvuumhverfi.
Hópstjóri aðgangsstýringa er ábyrgur fyrir
hönnun og uppsetningu aðgangsstýringa
að rafrænum aðgerðum og gögnum í
stórtölvu og Windows og Unix umhverfi.
Helstu verkefni
» Móttaka þjónustu-, aðgangs-,
vinnslu- og verkbeiðna
» Skilgreina og koma í farveg hjá
sérfræðingum flóknari beiðnum
» Prófanir á nýjum lausnum
» Vöktun á öllum kerfum félagsins
» Þróun deildar og þjónustuferla
Helstu verkefni
» Samskipti við viðskiptavini
» Skilgreining og framþróun lausna
» Sérfræðiaðstoð
» Að tryggja þjónustugæði
» Hönnun og arkitektúr
Hæfniskröfur
» Góðir samskiptahæfileikar
» Háskólamenntun og starfsreynsla
í upplýsingatækni
» Gott vald á íslenskri tungu
Helstu verkefni
» Umsjón skipulagðra vinnubragða
í hópum, með áætlunum og eftirfylgni
» Umsjón með virku gæðaeftirliti í hópnum
» Mat á þjálfunarþörf starfsmanna
Hæfniskröfur
» Góðir samskiptahæfileikar
» Háskólamenntun í upplýsingatækni
» Starfsreynsla við upplýsingatækni
» Gott vald á íslenskri tungu
Stöðurnar heyra undir framkvæmdastjóra
Rekstrar- og öryggislausnasviðs.