Fréttablaðið - 09.07.2011, Side 49

Fréttablaðið - 09.07.2011, Side 49
matur 5 www FJÓRIR FLJÓTLEGIR RÉTTIR FYRIR SVALIRNAR LÉTT ÁVAXTASALAT FYRIR EINN Skerið 2 ferskjur í litla bita og blandið þeim saman við lófafylli af blá- berjum í skál. Hrærið 3 msk. af hlynsírópi saman við ¼ tsk. af sjávarsalti og 2 msk. af appelsínu- safa. Hellið blöndunni yfir ávaxtablönduna og snæðið. BAKAÐUR KÚRBÍTUR FYRIR EINN Í þennan rétt þarf einn miðlungsstóran kúrbít, 2 msk. ólífuolíu, ¼ bolla af rifnum parmesan- osti, salt og pipar. Kúrbíturinn er skorinn í um 1 sentimetra þykkar sneiðar og settur í eldfast mót eða á bökunarpappír á plötu. Ólífuolíunni er hellt yfir kúrbítinn og þar á eftir er parmesanostinum stráð ofan á. Rétturinn er bakaður í 190° C í 35-40 mínútur. Tilvalið miðdegissnarl á svölunum. KARTÖFLUSALAT MEÐ BEIKONI OG EGGJUM FYRIR EINN Sjóðið 200 g af kartöflum, kælið, skrælið og skerið í bita við hæfi. Harðsjóðið 2 egg og skerið þau í bita af svipaðri stærð og kartöflurnar. Steikið 4-5 sneiðar af beikoni og skerið í litla bita. Blandið saman 2 msk. af majónesi, 2 msk. af sýrðum rjóma og 1 msk. af rifsberjahlaupi. Kryddið blönduna með salti og pipar. Blandið kartöflunum, eggjunum og beikoninu saman við sósuna og setjið í skál. Best er að láta salatið standa í kæli, að minnsta kosti í 5 klst. áður en snætt er. FERSKIR MAÍSSTÖNGLAR FYRIR EINN Maísstönglar með bræddu smjöri og salti er einfaldur réttur sem slær yfirleitt í gegnum hjá ungum sem öldnum. Oft er hægt að kaupa maísstönglana ferska og er um að gera að nýta sér slík tækifæri og henda nokkrum í pott eða á grillið. Muna bara að hreinsa blöðin utan af honum áður. Til að fá maísinn mjúkan er gott að sjóða hann í 15 mínútur en vilji fólk hann heldur stökkan er nóg að sjóða hann í 8 mínútur. Á grillinu er gott að miða við 15 mínútur. Setjið smjör og salt á stönglana eftir eldun og saltið ekki suðuvatnið, það gerir þá harða. NJÓTTU www.ora.is GRILLUM SAMAN Í SUMAR GRILLAÐU AF ÁSTRÍÐU www.allrecipes.com er vefsíða þar sem hægt er að nálgast ýmsar uppskriftir, meðal annars grískt pasta, vatns- melónu salat og rjómalagaða aspassúpu. www.bbcgoodfood.com birtir ýmsar uppskriftir. Þar er að finna grænmetisrétti, heilsusamlegar uppskriftir, og ýmsa þjóðlega rétti. www.foodista.com er vefsíða þar sem birtar eru fréttir og fróðleikur um mat ásamt uppskriftum. Markmiðið er að búa til alfræðiorðabók um mat á netinu. Sniðugar vefsíður

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.