Fréttablaðið - 09.07.2011, Qupperneq 78
9. júlí 2011 LAUGARDAGUR54
PERSÓNAN
Nafn: Eysteinn Sigurðarson
Aldur: 20 ára.
Starf: Rödd
sannleikans í
Villta Vestrinu á
FM957.
Fjölskylda: Hún
er stór og flókin.
Foreldrar:
Sigurður Böðvars-
son læknir og
Anna Kristín Ólafsdóttir stjórnsýslu-
fræðingur.
Búseta: Hótel Mamma í Vestur-
bænum.
Stjörnumerki: Bogmaður.
Eysteinn Sigurðarson er einn af
þáttastjórnendum Vilta Vestursins á FM
957 alla virka morgna frá kl. 7-9.
„Charlie Murphy er mjög fyndinn
sögumaður,“ segir Berang Sha-
hrokni, verkefnastjóri hjá sænska
afþreyingarfyrirtækinu Absimilis
Entertainment.
Absimilis stendur fyrir komu
grínistans Charlie Murphy til
landsins, en hann treður upp í
Hörpu laugardaginn 1. október.
Murphy er stóri bróðir leikarans
Eddie Murphy og var í fylgdarliði
hans á árum áður.
Shahrokni sér um uppistands-
sýningar víða um Evrópu og hefur
áður flutt grínista til Íslands.
Hann var í föruneyti Pablo Franc-
isco þegar hann tróð upp í Reykja-
vík í október á síðasta ári og segist
hafa fundið fyrir miklum áhuga á
bandarísku gríni hér á landi. „Mér
fannst því góð hugmynd að flytja
fleiri grínista til Íslands,“ segir
hann og bætir við að hann hafi í
hyggju að flytja inn stór nöfn til
Íslands í framtíðinni.
Margir muna eftir Charlie
Murphy úr gr ínþát tunum
Chappelle Show, sem sýndir voru
á Skjá einum fyrir nokkrum árum.
Þar sagði hann meðal annars
óborganlegar sannar sögur af tím-
anum í fylgdarliði bróður síns. Á
meðal þeirra sem voru fyrirferðar-
miklir í sögunum voru tónlistar-
mennirnir Rick James og Prince.
Shahrokni segir Murphy vera ein-
stakan sögumann og að sá hæfi-
leiki leyni sér ekki í uppistandinu.
„Sýningin hans er ólík sýningum
annarra grínista. Hún er mjög
lík þáttunum E! True Hollywood
Stories, en bara miklu fyndnari.“
Shahrokni segir að Ísland sé nú
komið aftur á kortið hjá fyrirtæki
hans, eftir óvissu sem skapaðist
meðal annars í kjölfar efnahags-
hrunsins. Þá segir hann tónlist-
ar- og ráðstefnuhúsið Hörpu hafa
mikið að segja og að loksins sé
kominn salur sem henti fullkom-
lega fyrir sýningar sem þessar.
„Hingað til hefur ekki verið tón-
leikasalur í Reykjavík. Það hafa
ekki verið margir salir sem virka
fyrir listamennina okkar,“ segir
hann. „Harpa er akkúrat það sem
Reykjavík þarf á að halda, en ég
vildi að þar væri líka fimm eða sex
þúsund manna salur.“
atlifannar@frettabladid.is
BERANG SHAHROKNI: LOKSINS KOMINN SALUR UNDIR GRÍNIÐ Á ÍSLANDI
Charlie Murphy segir
sannar sögur í Hörpu
BRÆÐUR Charlie Murphy, til hægri á myndinni, ásamt litla bróður, leikaranum Eddie Murphy. NORDICPHOTOS/GETTY
„Við unnum smá verkefni með honum um dag-
inn og það var alveg rosalega gaman, hann er
algjör snillingur. Hann verður alveg pottþétt
hluti af plötunni,“ segir Georg Holm, bassa-
leikari Sigur Rósar.
Tónskáldið Daníel Bjarnason mun vinna
með Sigur Rós á næstu plötu sveitarinnar.
Bassaleikarinn segir meðlimi sveitarinnar
hafa klárað nokkra grunna að lögum en vildi
ekki staðfesta neinar tölur í þeim efnum.
Fréttablaðið hafði heyrt tölunni níu fleygt
fram. „Þau gætu verið fleiri og þau gætu verið
færri,“ segir Georg en hann var staddur í
Tyrklandi í fríi þegar Fréttablaðið náði tali af
honum.
Sigur Rós hefur legið í dvala í dágóðan
tíma enda var söngvarinn þeirra, Jón Þór
Birgisson, að einbeita sér að sólóferli sínum.
Georg viðurkennir að fríið hafi gert þeim gott.
„Það var fínt að gera ekkert tónlistartengt í
smá tíma, bara anda og hafa gaman.“ Alvara
lífsins tekur hins vegar við í þarnæstu viku
þegar vinna hefst að nýju. Bassaleikarinn vildi
ekki gefa upp neina nákvæma dagsetningu á
útgáfu þótt umboðsmennirnir væru eflaust til-
búnir með þær. Og hann boðar nýja tíma hjá
Sigur Rós. „Platan verður full af leikgleði eins
og á þeirri síðustu en við erum að feta nýjar
slóðir, jafnvel aðrar slóðir en við höfum nokk-
urn tímann fetað.“ - fgg
NÝR SAMSTARFSFÉLAGI Tónskáldið Daníel Bjarnason
vinnur með Sigur Rós á næstu plötu sveitarinnar.
Georg Holm lýsir honum sem snillingi.
„Ég hef lengi verið að spá og spekúlera í þessum hlut-
um og langað til að gera eitthvað þessu líkt. Ég datt
í algjöran lukkupott þegar ég fann þennan bíl,“ segir
Guðfinnur Karlsson, athafnamaður með meiru en oft-
ast kenndur við Prikið. Á næstunni mega höfuðborg-
arbúar búast við því að sjá einstakt farartæki á götum
bæjarins. Hamborgarastað á hjólum, innblásinn af
rokki og róli eins og nafnið gefur til kynna; Rokk Inn.
Finni er kominn með leyfi fyrir bílnum á Geirsgö-
tuplani, ætlar að færa út kvíarnar enn frekar og
hyggst jafnframt herja á afmæli og aðrar veislur.
„Þetta er mjög einfalt, bara grillaður hamborg-
ari og kók,“ segir Finni. Og hamborgararnir
bera engin venjuleg nöfn heldur eru kenndir við
alvöru rokkgoð og hljómsveitir; Axl Rose, Led
Zeppelin og Frank Zappa svo einhverjir séu
nefndir.
Eins og myndirnar gefa til kynna hefur
Finni lagt mikla vinnu í að endur-
byggja bílinn og hann er þessa
dagana að koma fyrir borðum í
honum. Með honum fylgir síðan
hoppukastali sem athafnamaður-
inn er að panta frá Kína og hann
verður auðvitað í stíl við allt
annað, í hamborgaralíki. - fgg
Rokkhamborgarar á hjólum
ÓTRÚLEGUR VIÐSNÚNINGUR Þegar Finni
fann bílinn var greinilegt að hann
þurfti að leggja mikla vinnu í hann.
Það hefur hann nú gert og bíllinn
lítur svona út í dag. Hann á þó
enn eftir að leggja lokahöndina
á meistaraverkið áður en það
sigrar heiminn.
Sumarlokun
Skrifstofa VM verður lokuð vegna
sumarleyfa 18. júlí – 2. ágúst.
Umsóknir í sjúkra- og fræðslusjóð sem greiða
á 29. júlí, þurfa að berast fyrir 15. júlí.
Sími umsjónarmanns
orlofshúsa er 693-1333.
Hún svarar eingöngu fyrir-
spurnum vegna orlofshúsa.
VM-FÉLAG VÉLSTJÓRA OG MÁLMTÆKNIMANNA
Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - 575 9800 - www.vm.is
Meiri Vísir.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir,
meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf,
meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á vísi.
Á Veiðivísi, nýjum veiðivef Vísis, getur þú nálgast helstu fréttir,
ítarlega umfjöllun og gagnlegar upplýsingar um veiði, hvort heldur
sem er stangveiði eða skotveiði. Fylgstu með í sumar og nýttu þér
allt sem Vísir hefur upp á að bjóða.
Daníel Bjarnason á næstu plötu Sigur Rósar