Fréttablaðið - 16.07.2011, Blaðsíða 27
Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426 Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
Við leitum að öflugum
framkvæmdastjórum
Í kjölfar stefnu- og skipulags-
breytinga auglýsir Reiknistofa
bankanna hf. tvær nýjar fram-
kvæmdastjórastöður. Framundan
eru spennandi verkefni sem miða
að því að gera Reiknistofuna að
alhliða þjónustumiðstöð og fyrsta
valkosti fyrirtækja á fjármála-
markaði, til að nútímavæða og
hagræða í sínum tæknirekstri.
Sala og viðskiptaþróun er nýtt svið innan RB
sem er ætlað að efla tengsl við viðskiptavini,
styrkja ímynd félagsins og ekki síst að
efla þjónustu framboðið með mótun nýrra
viðskiptatækifæra. Leitað er að framsæknum
leiðtoga til að byggja upp sviðið, móta öfluga
liðsheild og breyta félaginu til að styrkja
og efla þjónustu þess. Framkvæmdastjóri
Sölu og viðskiptaþróunar er einn af lykil-
starfsmönnum félagsins, hann þarf að vera
framsækinn og traustur leiðtogi og öðrum
góð fyrirmynd.
Rekstrar- og öryggislausnir er nýtt svið
innan RB sem er ábyrgt fyrir hönnun á
tæknilegum innviðum og rekstri þjónustu-
lausna félagsins sem sérsniðnar eru að þörfum
fjármálamarkaðar. Mikil áhersla er lögð á
rekstrar- og gagnaöryggi þeirra og hag-
kvæman og skilvirkan rekstur. Leitað er að
framsæknum leiðtoga til að leiða sviðið,
en þar starfa 50 manns. Honum er ætlað
að móta öfluga liðsheild og taka þátt í að
breyta félaginu með því að styrkja og efla
þjónustu þess. Framkvæmdastjóri Rekstrar-
og öryggislausna er einn af lykilstarfsmönnum
félagsins. Hann þarf að vera framsækinn og
traustur leiðtogi og öðrum góð fyrirmynd.
Upplýsingar veita:
Friðrik Þór Snorrason,
forstjóri Reiknistofunnar,
í síma 841 6000.
Guðbrandur Jónasson,
starfsmannastjóri,
í síma 896 3328.
Umsóknir ásamt kynningar-
bréfi skal senda Guðbrandi
Jónassyni, gudbrandur@rb.is,
fyrir 21. júlí nk.
Rekstrar- og öryggislausnir
» Vörustjórnun
» Kerfisþjónusta
» Gagnaþjónusta
» Net- og öryggisþjónusta
» Hýsingar- og rekstrarþjónusta
» Kortagerð og prentþjónusta
Hæfniskröfur
» Leiðtogahæfileikar
og stjórnunarreynsla
» Orka og vilji til krefjandi verka
» Góðir samskiptahæfileikar
» Góð reynsla af uppbyggingu
rekstrarþjónustu
» Mikil greiningarhæfni
» Ríkur skilningur á upplýsingatækni
» Góður skilningur á fjármálamarkaði
» Menntun á háskólastigi
» Reynsla af viðkomandi starfssviði
Framkvæmdastjóri Rekstrar- og öryggislausna
Sala og viðskiptaþróun
» Viðskiptaþróun
» Söluráðgjöf
» Viðskiptastýring
» Markaðsmál
Hæfniskröfur
» Leiðtogahæfileikar
og stjórnunarreynsla
» Orka og vilji til krefjandi verka
» Góðir samskiptahæfileikar
» Góð reynsla af vöruþróun
og uppbyggingu sölustarfs
» Mikil greiningarhæfni
» Góður skilningur á fjármálamarkaði
» Góður skilningur á upplýsingatækni
» Menntun á háskólastigi
» Reynsla af viðkomandi starfssviði
Framkvæmdastjóri Sölu og viðskiptaþróunar