Fréttablaðið - 26.07.2011, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 26.07.2011, Blaðsíða 1
veðrið í dag MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl - júní 2011 Þriðjudagur skoðun 14 2 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Allt Súkkulaði 26. júlí 2011 172. tölublað 11. árgangur SÚKKULAÐIÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 2011 Kynningarblað Sælkeraferðir, eftirréttir, uppskriftir, fróðleikur. Hjartað tekur meiri kipp við súkk-ulaðiát en við ástríðufullan koss, sem ef til vill skýrir vinsældir þess. SÚKKULAÐI ÁHRIFARÍKARA EN ÁSTRÍÐUFULLUR KOSS Ýmsar rannsóknir hafa verið gerðar á áhrifum súkkulaðis en það er meðal annars talið hafa góð áhrif á blóðflæði og örva heilaboð. Ein af mýmörgum rannsóknum á þessu vinsæla ljúfmeti hefur leitt í ljós að þeir sem bræða súkkulaði í munni sér sýna fram á meiri virkni í heila og hraðari hjartslátt en fólk sem tekur þátt í ástríðu-fullum kossi. Áhrifin á hjarta og heilaboð endast líka fjórum sinnum lengur. Víða um heim má sækja skipulagða viðburði þar sem súkkulaði gegnir stóru hlutverki. A lls kyns skemmtilegar og áhugaverðar uppákomur tengdar súk kulaði eru skipulagðar víða um heim og upp-lagt fyrir sælkera að sækja þær til að láta dekra við bragðlaukana.Salon du Chocolat er sjálfsagt ein umfangsmesta og vinsælasta alþjóðlega súkkulaðihátíðin. Gest-um og gangandi gefst þar færi á að fylgjast með samkeppni um bestu súkkulaðiuppskriftina, horfa á tískusýningar sem tengjast súkk-ulaði, skoða súkkulaðiskúlptúra og vitanlega bragða á ýmsu góðgæti. Hátíðin hefur verið haldin árlega frá 1994 og fer nú fram í sýning-arhöllum við Porte de Versailles í París dagana 20. til 24. október.Önnur árleg hátíð fer fram í Perugia á Ítalíu, nú dagana 14. til 23. október. Miðbærinn tekur þá á sig mynd útimarkaðar með sölu-básum og viðburðum helguðum súkkulaði. Margir hafa vakið at-hygli í gegnum tíðina; þar á meðal heimsins stærsti súkkulaðibar sem var reistur þar 2003. Hann var tveggja metra hár, sjö metra breið-ur og settur saman úr sex tonnum af dökku súkkulaði. Reiknað er með að hátíðin laði til sín milljón gesti í ár. Aðrar vinsælar súkkulaðihátíð-ir standa sælkerum til boða, þar á meðal í portúgalska bænum Óbi-dos. Hún fer að vísu ekki fram fyrr en á næsta ári, dagana 3. til 13. mars ,og gæti því verið tilval-in fyrir þá sem vilja skipuleggja fríið sitt með góðum fyrirvara. Þar spreyta bakarar sig í sætindagerð og í boði eru súkkulaðikynningar og námskeið í súkkulaðigerð fyrirbörn og fullorðna Hátíðahöld fyrir sælkera KARAMELLUR SEM BRÁÐNA Á TUNGU1 dl rjómi 125 g sykur 100 g síróp 200 g súkkulaði 70%Setjið rjóma, sykur og síróp í pott og hitið að suðu. Brytjið súkkulaðið setjið þ Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457 Mangó er vinsælasti ávöxtur í heimi. Kíví inniheldur helmingi meira C-vítamín en appelsína og það eru yfir 7.000 eplategundir ræktaðar í heiminu . Þetta er á meðal þess fróðleiks sem er að finna á heimasíðunni http://www.fruitsinfo.com/ teg 198880 - mjúkur og létt fylltur í BC skálum á kr. 4.600,- buxur í stíl á kr. 1.990,- Laugavegi 178 - Sími: 551 3366 Opið mán.-fös. 10-18. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is Vertu vinur N Ý T T O G G L Æ S I L E G T Nuddrúlla Mýkir upp stífa og auma vöðva eftir æfingar. Hentar vel fyrir íþróttafólk og alla sem stunda líkamrækt, göngur, hlaup og golf. Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Í sumar er opið virka daga frá kl. 9 -18 Verð: 4.980 kr. ÍSLENSK FÆÐUBÓT BITAFISKUR -næring fyrir líkama og sál Þ að hefur mikil áh if á Hefur áhrif á sjálfsmynd Námskrá lestrar á Íslandi hefur ekki breyst í tíu ár að því er fram kemur í nýrri evrópskri rannsókn: MYND/ÚR EINKASAFNI Gleðilegt sumar! Lóritín® HVÍTA HÚS IÐ / S ÍA - A ct av is 1 14 09 1 ms.is Nýtt HVÍTA H Ú S IÐ /S ÍA Gráða & feta ostateningar í olíu EFNAHAGSMÁL Tekjujöfnuður ársins 2010 var neikvæður um 123 millj- arða króna, sem er 41 milljarði króna verri afkoma en gert var ráð fyrir í fjárheimildum ríkis- ins. Hallinn nemur 26 prósentum af heildartekjum ársins og 8 pró- sentum af landsframleiðslu. Þetta kemur fram í ríkisreikningi sem kynntur verður í dag. Tekjuáætlun stóðst nokkurn veginn, en gjöldin voru 42 millj- örðum króna hærri en gert var ráð fyrir. Munar þar mest um 33 milljarða viðbótarframlag til Íbúða lánasjóðs. Tekjujöfnuður ársins 2009 nam 139 milljörðum króna og staðan á ríkisreikningi fer því batnandi. Tekjur ársins 2010 urðu alls 479 milljarðar króna, en það nemur 31 prósenti af landsfram- leiðslu ársins. Þær jukust um 39 milljarða frá árinu 2009, þegar þær voru 440 milljarðar króna. Aukningin skýrist að mestu leyti af tryggingargjöldum, sem eru 18 milljarðar, og skattar á tekjur og hagnað einstaklinga voru rúmum 5 milljörðum króna hærri 2010 en árið áður. Skattar á tekjur og gjöld lögaðila lækkuðu hins vegar um 13 milljarða króna milli ára. Gjöld ríkissjóðs árið 2010 námu 601 milljarði króna og voru 42 milljörðum króna hærri en fjár- heimildir gerðu ráð fyrir. Gjöld- in jukust um fjögur prósent frá árinu 2009. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra segir að í grófum dráttum hafi náðst sá árangur sem að var stefnt varðandi rekst- ur ríkisins árið 2010. Óregluleg- ir liðir séu hins vegar hærri, en þar muni mest um framlagið til Íbúða lánasjóðs. „Það framlag verður að afskrifa þar sem fjárhagsstaða sjóðsins býður ekki upp á að það sé eignfært. Það er auðvitað dálítið kjaftshögg sem bókhalds- lega kemur á ríkið.“ Steingrímur segir að sá árang- ur sem að var stefnt, að draga úr útgjöldum og halda uppi tekjum, hafi fyllilega náðst, ef eitthvað er heldur betur árin 2009 og 2010 en áætlanir hafi gert ráð fyrir. „Hið sama má segja um það sem af er þessu ári. Eftir fyrstu sex mánuði erum við vel á áætlun. Tekjur eru heldur yfir áætlun og útgjöld undir. Allt tal og hræðslu- áróður manna um eitthvað annað er einfaldlega á vanþekkingu eða misskilningi byggt.“ - kóp Halli 41 milljarði yfir áætlun Halli á ríkisrekstri árið 2010 nam 123 milljörðum króna. Það er 41 milljarði meira en gert var ráð fyrir. Við- bótarframlag til Íbúðalánasjóðs stærsta skýringin á verri afkomu. Tekjur jukust um 39 milljarða milli ára. Það er auðvitað dálítið kjaftshögg sem bókhaldslega kemur á ríkið. STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON FJÁRMÁLARÁÐHERRA Adrenalínið á fullt Fyrsta ThunderCat-keppnin var haldin í Reykjavík um helgina en um er að ræða vinsælasta bátasport í heimi. allt 2 Fer eigin leiðir Ingveldur Ýr Jónsdóttir söngkona er 45 ára í dag. tímamót 20 Hita upp fyrir Hansard Hljómsveitin Ylja hitar óvænt upp fyrir Írann Glen Hansard í kvöld. fólk 30 ÚRKOMA V-TIL Í dag verður bjart A-til en skýjað að mestu V-til. Hvessir með deginum og fer að rigna S- og V-til seinnipartinn. Hiti 12-20 stig. VEÐUR 4 13 13 18 11 17 MENNTUN Fleiri íslenskir nemend- ur glíma að meðaltali við alvarleg lestrarvandamál en annars staðar í Evrópu. Þetta kemur fram í nýrri evrópskri skýrslu um lestrar- kennslu í álfunni sem gerð var á vegum Eurydice, upplýsinganets ESB um menntunarmál í Evrópu. Í skýrslunni kemur fram að Ísland sé annað tveggja landa þar sem lestrarnámskrá hefur ekki breyst á síðustu tíu árum. Hitt landið er Búlgaría en nemendur þar standa hvað verst í lestri í álf- unni samkvæmt skýrslunni. Rann- veig Lund sérkennari fullyrðir að undanfarin fjögur ár hafi áherslur í lestrarkennslu breyst mikið í skólum landsins. - mmf / sjá Allt Námskrá í lestri breytist ekki: Margir glíma við lesvanda LESTRARKENNSLA Rannveig Lund leiðbeinir ungum nema. NOREGUR Norðmenn syrgðu í gær og minntust þeirra sem létust í hryðjuverkunum í Útey og Ósló á föstudag. Í höfuðborginni flutti Jens Stoltenberg forsætisráðherra ávarp og mannfjöldinn sýndi hluttekningu sína með einnar mínútu þögn í blómahafi. Það sama var uppi á teningnum hvar- vetna á Norðurlöndunum, meðal annars á Íslandi. Illvirkinn Anders Breivik var í gær úrskurðaður í átta vikna gæsluvarðhald og skal sæta geðrann- sókn. Dómari neitaði ósk Breiviks um að vænt- anleg réttarhöld yfir honum yrðu opin. Breivik er sagður hafa borið við yfirheyrslur í gær að starfandi væru tvær hryðjuverkasellur sem hann tengdist. Nágranni segir Breivik hafa verið svo undar- legan og grunsamlegan að hann hafi oft íhugað að setja sig í samband við lögreglu. Fleiri frásagnir af skotárásinni í Útey koma nú stöðugt fram. Ein þeirra er af Norðmanni sem bjargaði á milli 40 til 50 manns í land þótt ódæðis- maðurinn Breivik hafi skotið að báti hans. Einnig er sagt frá þýskum ferðamanni sem talinn er hafa bjargað allt að tuttugu ungmennum úr sjónum og flutt í skjól á landi á árabátnum sem hann hafði á leigu. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir mikilvægt að ræða mál án þess að næra öfgar og ofstæki. „Við gerum samfélagið ekkert betra með því að draga fram og hampa einhverju ofstæki,“ segir fjármálaráðherrann. - gar / sjá síður 8 og 10 Dómari í Ósló synjaði fjöldamorðingjanum Anders Breivik um opið réttarhald: Norðmenn syrgðu í rósahafi Á RÁÐHÚSTORGINU Í ÓSLÓ Norðmenn eru beygðir en ekki brotnir þrátt fyrir að ódæðismaður hafi greitt norsku þjóðinni harðasta höggið sem hún hefur fengið frá því í heimsstyrjöldinni síðari. Samstaða og samhugur einkenndu minningarathöfn á Ráðhústorginu í Ósló í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Tíu FH-ingar unnu Val FH vann 3-2 sigur á Val þrátt fyrir að missa mann af velli á 56. mínútu. sport 32

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.