Fréttablaðið - 26.07.2011, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 26.07.2011, Blaðsíða 16
16 26. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR Að gefnu tilefni langar mig til að leggja orð í belg vegna umfjöllunar í fjölmiðlum um byggingu nýs fangelsis en sú staða virðist komin upp að útboð getur ekki hafist vegna ágrein- ings í ríkisstjórn um fjármögn- un verksins. Miklar breytingar hafa orðið í samfélaginu, lögregla hefur verið efld, tollgæsla styrkst, refsingar hafa þyngst og dómstólar orðið skilvirkari. Fangelsismálastofn- un á orðið erfitt með að sinna lögbundnu hlutverki sínu, fulln- ustu refsingar brotamanna sem dæmdir hafa verið til refsivist- ar. Í landinu eru sex fangelsi, þar af tvö á höfuðborgarsvæð- inu, sem bæði hafa verið rekin á undanþágu heilbrigðisyfir valda til margra ára enda svo komið að þar er erfitt að uppfylla nútíma- skilyrði um mannúðlega refsivist fanga. Hegningar húsið var byggt 1874 og getur hýst 16 fanga. Kópavogs- fangelsið var tekið í notkun 1989 og getur hýst 12 fanga. Það er eina fangelsið fyrir konur. Af ýmsum ástæðum eru bæði þessi fangelsi óhæf undir þá starfsemi sem þar fer fram. Hegningarhús- ið var reist á 19. öld þegar helstu samgöngutæki voru hestar og þjóðin var bændasamfélag. Allt frá miðri síðustu öld hefur verið rætt opinberlega um að Hegn- ingarhúsið sé ekki heppilegur vistunarstaður fyrir fanga. Árið 1961 lét Bjarni Benediktsson, þáverandi dómsmálaráðherra, vinna skýrslu um drög að nýju fangelsi í Reykjavík vegna þess að Hegningarhúsið uppfyllti ekki kröfur um aðbúnað. Þetta var fyrir 50 árum! Kópavogsfang- elsið var ekki byggt sem fang- elsi og hefur í raun hentað illa sem slíkt, sérstaklega til lengri tíma fangavistar. Húsnæðið er þröngt og lítið rými til athafna og útivistar fanga. Það er að mínu áliti óásættanlegt að konur þurfi að afplána langa refsingu þar. Bæði fangelsin standa auk þess of nærri byggð, Hegningarhúsið í miðju verslunar- og skemmt- anahverfi og Kópavogsfangelsi í íbúðahverfi, 50 metra frá stórum leikskóla. Það gleymist stundum í umræðunni að báðum fangels- unum þarf að loka til frambúð- ar en það er óhugsandi að kippa burt 28 fangaplássum í land- inu án þess að byggja fyrst nýtt fangelsi. Í þessu samhengi er ekki úr vegi að rifja upp að CPT nefndin, Committee for the Pre- vention of Torture and inhuman or degrading treatment or pun- ishment, sem er óháð eftirlits- nefnd á vegum Evrópuráðsins, hefur í þrígang gert þá kröfu til íslenskra stjórnvalda að þau geri bragarbót varðandi fangavist á höfuðborgarsvæðinu. Og þau hafa svo sannarlega tekið undir það í orði en ekki á borði. Gagn- rýnin er réttmæt um aðstöðuleysi í fangelsunum og þann vanda sem við er að glíma bæði hvað varðar starfsmenn og fanga. Það er erfitt fyrir fangaverði að vinna árum saman í umhverfi sem uppfyllir ekki skilyrði um aðbúnað og hollustuhætti og bera að auki kvíðboga fyrir því að vinnustað þeirra verði lokað. Þeir hafa lagt sig fram um að starfa af fagmennsku við erfiðar aðstæður og það ber að þakka. Því má samt ekki gleyma að margt gott hefur verið gert í fangelsismálum á síð- ustu árum eins og endurbætur á Litla-Hrauni, Kvíabryggju, Akur- eyri og Bitru. Kjarni málsins er að tíma- bundin fangavist einstaklings á ekki að hafa í för með sér þján- ingu umfram það sem dómur- inn sem slíkur felur í sér. Þrátt fyrir ófullnægjandi aðstæður í Hegningarhúsinu hefur oft verið sagt að fangar séu ánægðir þar vegna þess að þar sé góður andi. En það er ekki nóg því auk manngæsku þarf að koma til markvissara skipulag til að fangelsisvistin nýtist fanganum betur, t.d. við nám, meðferð og vinnu. Það verður ekki framför við óboðlegar aðstæður, það er erfitt að troða hugmyndafræði og úrræðum nútímans inn í 19. aldar húsaskipan og ætlast til að ná árangri meðan fangarnir verða nánast að borða af hnján- um á sér vegna plássleysis. Erf- itt er að gera breytingar þar sem húsið er að stórum hluta friðað. Allir sem starfa innan geirans leggja sig fram við að gera það besta úr hlutunum. En við getum gert betur. Gleymum því ekki að fangi heldur aftur út í samfélagið að fangavist lokinni. Þess vegna er svo mikilvægt að í fangelsum fari fram uppbyggileg meðferð. Að fjasað hafi verið um málið í 50 ár án þess að nýtt fangelsi í Reykjavík hafi orðið að veru- leika er auðvitað ekkert annað en gallsúr brandari. Á undanförn- um árum hef ég verið í mörgum starfshópum sem hafa unnið að þarfagreiningum vegna fangels- isbyggingar. Skoðum aðeins sög- una um Fangelsið Hólmsheiði. Hugmyndavinnan hófst 2001 í starfshópi, fram fór starf við þarfagreiningu, skipulag og fjár- mögnun en ekkert varð úr fram- kvæmdum. Á þeim tíu árum sem liðin eru hafa margar vilja- yfirlýsingar verið gefnar út og starfshópar unnið að mismunandi útfærslum. Ýmsar hugmyndir hafa verið í gangi: Byggja lítið fangelsi, breyta staðsetningu lóðar, sambyggja lögreglustöð og fangelsi, stækka Litla-Hraun o.s.frv. Fjöldi starfsmanna Fang- elsismálastofnunar, dómsmála- og fjármálaráðuneytis, lögreglu, framkvæmdasýslu og verkfræði- og arkitektastofa hefur unnið að þessu. Og alltaf hafa stjórnvöld á einhverjum tímapunkti skipt um kúrs eða hætt við, t.d. vegna deilna um skipulag eða staðsetn- ingu, hættu á ofþenslu í hagkerf- inu, kreppu og fjárskorts og núna vegna ágreinings í ríkisstjórn um fjármögnun verksins. Það er komið nóg af þessari vitleysu. Kjarni málsins er að væntanlega stendur áfram til að viðhalda skipulagi réttarríkis í landinu. Brotamenn munu eftir sem áður verða dæmdir til fang- elsisvistar, sumir í langan tíma en aðrir skemur. Fangelsismála- stofnun hefur lagt til rýmkun samfélagsþjónustu og rafrænt eftirlit en það breytir ekki þörf- inni fyrir fangelsisrými og við- unandi aðstöðu. Of löng bið er eftir fangelsis- plássi og ef ekkert er að gert verða meiri vandræði vegna þess að tvö fangelsi verða lögð niður. Þeim þarf að loka vegna þess að þau eru óhæf og þá verð- ur að koma til önnur fangelsis- bygging á höfuðborgarsvæðinu. Aðeins á eftir að bjóða út hönnun og framkvæmd verksins og hefj- ast handa. Markmiðið er að reisa nútíma fangelsi fyrir gæsluvarð- hald, móttöku fanga og grein- ingu, auk sérstakrar álmu fyrir kvenfanga. Allt tal um að þessi samsetning geti ekki verið undir sama þaki er út í hött, það er aðeins spurning um sveigjanleika í hönnun og byggingu. Það ríður á að hefjast handa og byggja til framtíðar með réttsýni, mannúð og skynsemi að leiðarljósi. Ég skora á stjórnvöld að skoða málið með opnum huga. Fangelsi á ekki að vera eitthvert óþurft- armál, fangar eru ekki óhreinu börnin hennar Evu. Refsivörslukerfið, þar með talin fangelsin, er mál samfélags- ins í heild, hluti þeirrar stjórn- sýslu sem við viljum að haldi utan um það. Er ekki orðið tíma- bært að styrkja það svo sómi sé að? Það gleymist stundum í umræðunni að báðum fangelsunum þarf að loka til frambúðar en það er óhugsandi að kippa burt 28 fangaplássum í landinu án þess að byggja fyrst nýtt fangelsi. Umræða um fangelsismál Fangelsismál Guðmundur Gíslason forstöðumaður fangelsa á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri AF NETINU Grundvallaratriðið Ævinlega þegar ódæðismenn eins og Breivik eiga í hlut rís krafan um afgreiðslu málsins án dóms og laga. Grundvallaratriðið í vestrænu réttarfari er að allir sakborningar, burtséð frá málavöxtum, fái sams konar málsmeðferð, þar sem sækjandi og verjandi hafa jafn- stöðu til að sækja og verjast. Breivik vill þetta réttarfar feigt og valda sem mestu uppnámi. Það tekst honum ef af heift og hatri er ráðist að verjanda hans. omarragnarsson.blog.is Ómar Ragnarsson Trúverðugleiki aðalvopnið Baráttuna við sjúkdómana þarf að vinna á mörgum vígstöðvum þar sem trúverðugleiki læknis- fræðinnar sjálfrar er aðalvopnið. Traust og trúnaður ekkert síður á milli stjórnvalda og læknis en milli læknis og sjúklings. Sem framtíð heilbrigðisþjónustunnar þarf öðru fremur að byggjast á og að læknar fái ráðið meiru til lengri tíma, en stjórnmálamennirnir til styttri tíma. Þar sem grunnurinn á að standa traustari fótum en það sem byggt er ofan á. blog.eyjan.is/vilhjalmurari Vilhjálmur Ari Arason Höfum opnað OUTLET í hluta verslunar okkar BYKO Kauptúni Opnunartímar í Kauptúni: Mán.-Fös.: 08:00 - 18:00 Laugardaga: 10:00 - 17:00 Sunnudaga: 11:00 - 17:00 KauptúniG A R Ð A B Æ Mikil verð- lækkun Allt sem þú þarft *Meðan birgðir endast Þú færð Fréttablaðið á 26 stöðum á Suðurlandi. Það er engin ástæða til að missa af neinu í sumar. Fréttablaðið er aðgengilegt um land allt. Því er dreift ókeypis í lúgur og kassa á kjarnadreifingarsvæði okkar. Auk þess er það selt í lausasölu á kostnaðarverði á 120 sölustöðum um land allt. Þú getur alltaf fengið Fréttablaðið beint í símann, fartölvuna eða spjaldtölvuna hvar sem er og hvenær sem er á Vísi.is eða fengið það sent með tölvupósti daglega. Nánar um dreifinguna má lesa á visir.is/dreifing. Það fá allir afmælisblöðru* á sölustöðum Fréttablaðsins um land allt. Fjöldi lausasölustaða á Suðurlandi Jákvæðar fréttir fyrir sumarið Olís, Höfn N1, Höfn Nettó, Höfn N1 Fossnesti, Selfossi Minni Borg, Selfossi Bónus, Selfossi Olís, Selfossi Krónan, Selfossi Samkaup Úrval, Selfossi Litla Kaffistofan, Ölfusi Þrastalundur, Selfossi Verslunin Árborg N1, Selfossi N1, Hveragerði Bónus, Hveragerði Samkaup Strax, Laugarvatni Samkaup Strax, Flúðum Olís, Hellu Söluskálinn Landvegamótum, Hellu N1, Hvolsvelli N1, Vík N1, Vestmannaeyjum Olís, Vestmannaeyjum Skýlið ehf, Vestmannaeyjum Vöruval ehf, Vestmannaeyjum Krónan, Vestmannaeyjum Kjarval, Vestmannaeyjum

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.