Fréttablaðið - 26.07.2011, Qupperneq 16
16 26. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR
Að gefnu tilefni langar mig til að leggja orð í belg vegna
umfjöllunar í fjölmiðlum um
byggingu nýs fangelsis en sú
staða virðist komin upp að útboð
getur ekki hafist vegna ágrein-
ings í ríkisstjórn um fjármögn-
un verksins.
Miklar breytingar hafa orðið í
samfélaginu, lögregla hefur verið
efld, tollgæsla styrkst, refsingar
hafa þyngst og dómstólar orðið
skilvirkari. Fangelsismálastofn-
un á orðið erfitt með að sinna
lögbundnu hlutverki sínu, fulln-
ustu refsingar brotamanna sem
dæmdir hafa verið til refsivist-
ar. Í landinu eru sex fangelsi,
þar af tvö á höfuðborgarsvæð-
inu, sem bæði hafa verið rekin á
undanþágu heilbrigðisyfir valda
til margra ára enda svo komið að
þar er erfitt að uppfylla nútíma-
skilyrði um mannúðlega refsivist
fanga.
Hegningar húsið var byggt 1874
og getur hýst 16 fanga. Kópavogs-
fangelsið var tekið í notkun 1989
og getur hýst 12 fanga. Það er
eina fangelsið fyrir konur. Af
ýmsum ástæðum eru bæði þessi
fangelsi óhæf undir þá starfsemi
sem þar fer fram. Hegningarhús-
ið var reist á 19. öld þegar helstu
samgöngutæki voru hestar og
þjóðin var bændasamfélag. Allt
frá miðri síðustu öld hefur verið
rætt opinberlega um að Hegn-
ingarhúsið sé ekki heppilegur
vistunarstaður fyrir fanga. Árið
1961 lét Bjarni Benediktsson,
þáverandi dómsmálaráðherra,
vinna skýrslu um drög að nýju
fangelsi í Reykjavík vegna þess
að Hegningarhúsið uppfyllti ekki
kröfur um aðbúnað. Þetta var
fyrir 50 árum! Kópavogsfang-
elsið var ekki byggt sem fang-
elsi og hefur í raun hentað illa
sem slíkt, sérstaklega til lengri
tíma fangavistar. Húsnæðið er
þröngt og lítið rými til athafna og
útivistar fanga. Það er að mínu
áliti óásættanlegt að konur þurfi
að afplána langa refsingu þar.
Bæði fangelsin standa auk þess
of nærri byggð, Hegningarhúsið
í miðju verslunar- og skemmt-
anahverfi og Kópavogsfangelsi í
íbúðahverfi, 50 metra frá stórum
leikskóla.
Það gleymist stundum í
umræðunni að báðum fangels-
unum þarf að loka til frambúð-
ar en það er óhugsandi að kippa
burt 28 fangaplássum í land-
inu án þess að byggja fyrst nýtt
fangelsi. Í þessu samhengi er
ekki úr vegi að rifja upp að CPT
nefndin, Committee for the Pre-
vention of Torture and inhuman
or degrading treatment or pun-
ishment, sem er óháð eftirlits-
nefnd á vegum Evrópuráðsins,
hefur í þrígang gert þá kröfu til
íslenskra stjórnvalda að þau geri
bragarbót varðandi fangavist
á höfuðborgarsvæðinu. Og þau
hafa svo sannarlega tekið undir
það í orði en ekki á borði. Gagn-
rýnin er réttmæt um aðstöðuleysi
í fangelsunum og þann vanda
sem við er að glíma bæði hvað
varðar starfsmenn og fanga.
Það er erfitt fyrir fangaverði að
vinna árum saman í umhverfi
sem uppfyllir ekki skilyrði um
aðbúnað og hollustuhætti og bera
að auki kvíðboga fyrir því að
vinnustað þeirra verði lokað. Þeir
hafa lagt sig fram um að starfa af
fagmennsku við erfiðar aðstæður
og það ber að þakka. Því má samt
ekki gleyma að margt gott hefur
verið gert í fangelsismálum á síð-
ustu árum eins og endurbætur á
Litla-Hrauni, Kvíabryggju, Akur-
eyri og Bitru.
Kjarni málsins er að tíma-
bundin fangavist einstaklings á
ekki að hafa í för með sér þján-
ingu umfram það sem dómur-
inn sem slíkur felur í sér. Þrátt
fyrir ófullnægjandi aðstæður
í Hegningarhúsinu hefur oft
verið sagt að fangar séu ánægðir
þar vegna þess að þar sé góður
andi. En það er ekki nóg því
auk manngæsku þarf að koma
til markvissara skipulag til að
fangelsisvistin nýtist fanganum
betur, t.d. við nám, meðferð og
vinnu. Það verður ekki framför
við óboðlegar aðstæður, það er
erfitt að troða hugmyndafræði
og úrræðum nútímans inn í 19.
aldar húsaskipan og ætlast til
að ná árangri meðan fangarnir
verða nánast að borða af hnján-
um á sér vegna plássleysis. Erf-
itt er að gera breytingar þar sem
húsið er að stórum hluta friðað.
Allir sem starfa innan geirans
leggja sig fram við að gera það
besta úr hlutunum. En við getum
gert betur. Gleymum því ekki að
fangi heldur aftur út í samfélagið
að fangavist lokinni. Þess vegna
er svo mikilvægt að í fangelsum
fari fram uppbyggileg meðferð.
Að fjasað hafi verið um málið
í 50 ár án þess að nýtt fangelsi
í Reykjavík hafi orðið að veru-
leika er auðvitað ekkert annað en
gallsúr brandari. Á undanförn-
um árum hef ég verið í mörgum
starfshópum sem hafa unnið að
þarfagreiningum vegna fangels-
isbyggingar. Skoðum aðeins sög-
una um Fangelsið Hólmsheiði.
Hugmyndavinnan hófst 2001
í starfshópi, fram fór starf við
þarfagreiningu, skipulag og fjár-
mögnun en ekkert varð úr fram-
kvæmdum. Á þeim tíu árum
sem liðin eru hafa margar vilja-
yfirlýsingar verið gefnar út og
starfshópar unnið að mismunandi
útfærslum. Ýmsar hugmyndir
hafa verið í gangi: Byggja lítið
fangelsi, breyta staðsetningu
lóðar, sambyggja lögreglustöð
og fangelsi, stækka Litla-Hraun
o.s.frv. Fjöldi starfsmanna Fang-
elsismálastofnunar, dómsmála-
og fjármálaráðuneytis, lögreglu,
framkvæmdasýslu og verkfræði-
og arkitektastofa hefur unnið að
þessu. Og alltaf hafa stjórnvöld
á einhverjum tímapunkti skipt
um kúrs eða hætt við, t.d. vegna
deilna um skipulag eða staðsetn-
ingu, hættu á ofþenslu í hagkerf-
inu, kreppu og fjárskorts og núna
vegna ágreinings í ríkisstjórn um
fjármögnun verksins.
Það er komið nóg af þessari
vitleysu. Kjarni málsins er að
væntanlega stendur áfram til að
viðhalda skipulagi réttarríkis í
landinu. Brotamenn munu eftir
sem áður verða dæmdir til fang-
elsisvistar, sumir í langan tíma
en aðrir skemur. Fangelsismála-
stofnun hefur lagt til rýmkun
samfélagsþjónustu og rafrænt
eftirlit en það breytir ekki þörf-
inni fyrir fangelsisrými og við-
unandi aðstöðu.
Of löng bið er eftir fangelsis-
plássi og ef ekkert er að gert
verða meiri vandræði vegna
þess að tvö fangelsi verða lögð
niður. Þeim þarf að loka vegna
þess að þau eru óhæf og þá verð-
ur að koma til önnur fangelsis-
bygging á höfuðborgarsvæðinu.
Aðeins á eftir að bjóða út hönnun
og framkvæmd verksins og hefj-
ast handa. Markmiðið er að reisa
nútíma fangelsi fyrir gæsluvarð-
hald, móttöku fanga og grein-
ingu, auk sérstakrar álmu fyrir
kvenfanga. Allt tal um að þessi
samsetning geti ekki verið undir
sama þaki er út í hött, það er
aðeins spurning um sveigjanleika
í hönnun og byggingu. Það ríður
á að hefjast handa og byggja til
framtíðar með réttsýni, mannúð
og skynsemi að leiðarljósi.
Ég skora á stjórnvöld að skoða
málið með opnum huga. Fangelsi
á ekki að vera eitthvert óþurft-
armál, fangar eru ekki óhreinu
börnin hennar Evu.
Refsivörslukerfið, þar með
talin fangelsin, er mál samfélags-
ins í heild, hluti þeirrar stjórn-
sýslu sem við viljum að haldi
utan um það. Er ekki orðið tíma-
bært að styrkja það svo sómi sé
að?
Það gleymist stundum í umræðunni
að báðum fangelsunum þarf að loka til
frambúðar en það er óhugsandi að kippa
burt 28 fangaplássum í landinu án þess að byggja
fyrst nýtt fangelsi.
Umræða um fangelsismál
Fangelsismál
Guðmundur
Gíslason
forstöðumaður fangelsa
á höfuðborgarsvæðinu
og Akureyri
AF NETINU
Grundvallaratriðið
Ævinlega þegar ódæðismenn eins
og Breivik eiga í hlut rís krafan
um afgreiðslu málsins án dóms
og laga.
Grundvallaratriðið í vestrænu
réttarfari er að allir sakborningar,
burtséð frá málavöxtum, fái sams
konar málsmeðferð, þar sem
sækjandi og verjandi hafa jafn-
stöðu til að sækja og verjast.
Breivik vill þetta réttarfar feigt
og valda sem mestu uppnámi.
Það tekst honum ef af heift og
hatri er ráðist að verjanda hans.
omarragnarsson.blog.is
Ómar Ragnarsson
Trúverðugleiki aðalvopnið
Baráttuna við sjúkdómana þarf
að vinna á mörgum vígstöðvum
þar sem trúverðugleiki læknis-
fræðinnar sjálfrar er aðalvopnið.
Traust og trúnaður ekkert síður á
milli stjórnvalda og læknis en milli
læknis og sjúklings. Sem framtíð
heilbrigðisþjónustunnar þarf öðru
fremur að byggjast á og að læknar
fái ráðið meiru til lengri tíma, en
stjórnmálamennirnir til styttri
tíma. Þar sem grunnurinn á að
standa traustari fótum en það sem
byggt er ofan á.
blog.eyjan.is/vilhjalmurari
Vilhjálmur Ari Arason
Höfum opnað
OUTLET í hluta
verslunar okkar
BYKO Kauptúni
Opnunartímar í Kauptúni:
Mán.-Fös.: 08:00 - 18:00
Laugardaga: 10:00 - 17:00
Sunnudaga: 11:00 - 17:00
KauptúniG A R Ð A B Æ
Mikil
verð-
lækkun
Allt sem þú þarft
*Meðan birgðir endast
Þú færð Fréttablaðið á 26 stöðum á Suðurlandi.
Það er engin ástæða til að missa af neinu í sumar. Fréttablaðið er aðgengilegt
um land allt. Því er dreift ókeypis í lúgur og kassa á kjarnadreifingarsvæði okkar.
Auk þess er það selt í lausasölu á kostnaðarverði á 120 sölustöðum um land allt.
Þú getur alltaf fengið Fréttablaðið beint í símann, fartölvuna eða spjaldtölvuna hvar sem er og hvenær sem er á Vísi.is
eða fengið það sent með tölvupósti daglega. Nánar um dreifinguna má lesa á visir.is/dreifing.
Það fá allir afmælisblöðru*
á sölustöðum Fréttablaðsins
um land allt.
Fjöldi lausasölustaða á Suðurlandi
Jákvæðar fréttir fyrir sumarið
Olís, Höfn
N1, Höfn
Nettó, Höfn
N1 Fossnesti, Selfossi
Minni Borg, Selfossi
Bónus, Selfossi
Olís, Selfossi
Krónan, Selfossi
Samkaup Úrval, Selfossi
Litla Kaffistofan, Ölfusi
Þrastalundur, Selfossi
Verslunin Árborg N1, Selfossi
N1, Hveragerði
Bónus, Hveragerði
Samkaup Strax, Laugarvatni
Samkaup Strax, Flúðum
Olís, Hellu
Söluskálinn Landvegamótum, Hellu
N1, Hvolsvelli
N1, Vík
N1, Vestmannaeyjum
Olís, Vestmannaeyjum
Skýlið ehf, Vestmannaeyjum
Vöruval ehf, Vestmannaeyjum
Krónan, Vestmannaeyjum
Kjarval, Vestmannaeyjum