Fréttablaðið - 26.07.2011, Page 6

Fréttablaðið - 26.07.2011, Page 6
26. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR6 SKATTAMÁL Þorsteinn Hjaltested, landeigandi á Vatnsenda í Kópa- vogi, er skattakóngur Íslands. Samkvæmt álagningarskrá rík- isskattstjóra greiðir hann 161,8 milljónir í skatta vegna síðasta árs. Þorsteinn var þriðji á listan- um í fyrra og greiddi þá um 120 milljónir. Samkvæmt upplýsingum frá ríkisskattstjóra greiðir Andri Már Ingólfsson, eigandi Primavera Travel Group, næsthæsta skatta vegna síðasta árs, 130,6 milljónir. Í þriðja sæti á hinum svokall- aða hákarlalista skattstjórans er Skúli Mogensen, einn eigenda MP banka, sem greiðir 111,5 milljón- ir. Í fjórða sæti er Guðbjörg M. Matthíasdóttir, eigandi Ísfélags- ins í Vestmannaeyjum. Hún greið- ir ríflega 98,2 milljónir í skatta. Meðal annarra landsþekktra nafna sem rata á lista ríkisskatt- stjóra eru Jóhannes Jónsson, kenndur við Bónus, sem er í 7. sæti og greiðir 78,6 milljónir, og sonur hans Jón Ásgeir, fyrrverandi stjórnarformaður Baugs Group og 365, í 35. sæti með 39,1 milljón. Þá er Ingunn Gyða Wernersdóttir athafnakona ofarlega á blaði, hún er í 11. sæti með 61,3 milljónir. Á listanum má sjá nöfn úr orku- geiranum, þá Hörð Arnarson, for- stjóra Landsvirkjunar, í 23. sæti með 48,1 milljón, og Ásgeir Mar- geirsson, forstjóra Geysis Green Energy, í 32. sæti með 41,1 milljón. Þar eru líka þau Kári Stefáns- son, forstjóri Íslenskrar erfða- greiningar, í 33. sæti með 40,8 milljónir, Guðbjörg Edda Eggerts- dóttir, aðstoðarforstjóri Actavis, í 40. sæti með 34,6 milljónir og Ingi Guðjónsson, annar stofnenda Lyfju, í 42. sæti með 35,9 milljónir. Bankamenn eru almennt færri og neðar á listanum en í góðær- inu. Til viðbótar við Skúla Mogen- sen eru þar Óttar Pálsson, fyrrver- andi forstjóri Straums Burðaráss, í 25. sæti með 46,6 milljónir, Þor- steinn Már Baldvinsson, fyrrver- andi stjórnarformaður Glitnis, í 36. sæti með 37,9 milljónir, og sæti neðar Bjarni Ármannsson, fyrr- verandi bankastjóri Glitnis, með 37,4 milljónir. brjann@frettabladid.is Eigandi Vatnsenda er skattakóngur ársins Þorsteinn Hjaltested landeigandi greiðir hæsta skatta fyrir síðasta ár, 162 millj- ónir króna. Þeir fimmtíu sem greiða hæstan skatt greiða samtals 2,7 milljarða. Þar af greiða tíu efstu um einn milljarð. Átta af 50 á hákarlalistanum eru konur. Einungis einn af hverjum sex hákörlum á síðasta ári eru konur. Átta konur eru á listanum þetta árið, en í fyrra voru konurnar níu talsins. Mikill meirihluti á lista ríkisskattstjóra býr á höfuðborgarsvæðinu. Sextán búa í Reykjavík, fjórtán í Garðabæ og fjórtán annars staðar á höfuðborgar- svæðinu. Aðeins sex af 50 búa utan höfuðborgarsvæðisins. Þeir 50 einstaklingar sem greiða hæsta skatta vegna síðasta árs greiða um 2,7 milljarða króna. Í fyrra greiddu 50 efstu samtals tæplega 3,1 milljarð króna. Tíu efstu á listanum greiða samtals um 981 milljón króna. Í fyrra greiddu tíu efstu tæplega 1,3 milljarða. Aðallega karlar af höfuðborgarsvæðinu VATNSENDI Þorsteinn Hjaltested á enn umtalsvert landsvæði á Vatnsenda, en Kópa- vogsbær hefur tekið stóran hluta þess eignarnámi. Deilur um bætur vegna þessa eru óleystar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Helstu skattgreiðendur Reykjavík Andri Már Ingólfsson Sólvallagötu 2 130,6 Anton Á. Kristinsson Gvendargeisla 76 68,7 Ingunn G. Wernersd. Bjarmalandi 7 61,3 Ívar Daníelsson Árskógum 6 58,4 Gunnar I Hafsteinsson Skildinganesi 58 50,3 Guðmundur S. Sveinss. Jóruseli 24 50,2 Hörður Arnarson Stallaseli 8 48,1 Katrín Þorvaldsdóttir Háuhlíð 12 44,5 Sverrir Sveinsson Suðurhlíð 38b 42,8 Kári Stefánsson Hávallagötu 24 40,8 Jón Ásgeir Jóhanness. Sóleyjargötu 11 39,1 Benedikt Eyjólfsson Funafold 62 36,8 Sigurður Gísli Pálmas. Ásenda 1 36,1 Eiríkur I. Þorgeirsson Fjarðarási 8 34,3 Kristinn Zimsen Furugerði 12 32,9 Guðbjörg A. Skúlad. Mýrarási 15 32,6 Garðabær Skúli Mogensen Blikanesi 19 111,5 Guðmundur S. Jónss. Eskiholti 4 91,8 Einar Sveinsson Bakkaflöt 10 61,1 Jón Pálmason Arnarási 2 59,3 Margrét Ásgeirsdóttir Blikanesi 19 52,2 David John Kjos Skrúðási 6 50,7 Steinunn Jónsdóttir Brekkuási 11 48,8 Finnur Reyr Stefánsson Brekkuási 11 47,3 Óttar Pálsson Kaldakri 5 46,6 Sigurður Örn Eiríksson Kornakri 4 43,0 Kristinn Gunnarsson Dalakri 10 42,4 Ásgeir Margeirsson Línakri 4 41,1 Benedikt Sveinsson Lindarflöt 51 33,8 Magnús R. Jónsson Eskiholti 15 33,5 Hafnarfjörður Magnús I. Óskarsson Blómvangi 20 75,5 Jakob M. Ásmundsson Hamarsbraut 8 42,3 Hinrik Kristjánsson Lækjarbergi 1 39,3 Sigurbergur Sveinsson Miðvangi 118 36,6 Guðbjörg E. Eggertsd. Næfurholti 2 36,4 Ólafur Björnsson Lækjarbergi 2 35,6 Helgi Vilhjálmsson Skjólvangi 1 32,9 Kópavogur Þorsteinn Hjaltested Vatnsenda 161,8 Sigurður Sigurgeirsson Grandahvarfi 4 85,6 Jóhannes Jónsson Fagraþingi 8 78,6 Arnór Víkingsson Kársnesbraut 64 42,2 Ingi Guðjónsson Bakkasmára 25 35,9 Seltjarnarnes Guðmundur Ásgeirss. Barðaströnd 33 57,1 Bjarni Ármannsson Bakkavör 28 37,4 Aðrir staðir Guðbjörg M Matthíasdóttir Birkihlíð 17, Vestmannaeyjum 98,2 Kristján V. Vilhelmsson Kolgerði 3, Akureyri 78,6 Dröfn Árnadóttir Aðalstræti 125, Vesturbyggð 57,0 Jón Zimsen Innra-Leiti, Dalabyggð 49,2 Þorsteinn Már Baldvinsson Barðstúni 7, Akureyri 37,9 Hans Ingi Þorvaldsson Heiðargerði 17, Reykjanesbæ 35,8 Allar tölur eru í milljónum króna. SKATTAMÁL Um 9.500 skattgreiðendur eru með tekjur yfir 680 þúsundum króna á mánuði og greiða því hátekjuskatt. Ríkissjóður hafði um 2,1 milljarð króna í tekjur af þessum hópi á síðasta ári sam- kvæmt samantekt ríkisskattstjóra vegna álagning- ar opinberra gjalda fyrir árið 2011. Um 151 þúsund greiða tekjuskatt, sem greiddur er í þremur þrepum. Mikill meirihluti skattgreið- enda, 133 þúsund manns, er með tekjur sem falla í annað skattþrepið af þremur. Þar falla þeir sem eru með mánaðartekjur á bilinu 209 til 680 þúsund krónur. Lítið hlutfall, um sex prósent þeirra sem greiða tekjuskatt, er með tekjur yfir 680 þúsundum og fell- ur því í efsta skattþrepið. Auðlegðarskattur var nú lagður á í annað skipti. Hann er lagður á eignir umfram skuldir, og er miðað við eignir umfram 75 milljónir hjá einstak- lingum en 100 milljónir hjá hjónum. Alls greiddu um 4.800 einstaklingar skattinn, samtals 4,8 millj- arða króna. Eignir umfram skattleysismörkin voru að meðaltali um 67 milljónir króna. Tekjur landsmanna af vinnu á síðasta ári voru um 812,4 milljarðar króna. Þessari upphæð var aflað af rúmlega 237 þúsund manns. Meðalmaður- inn aflaði því um 3,4 milljóna króna, eða um 283 þúsund á mánuði. Í fyrra var heimilað að draga kostnað við viðhald af húsnæði frá tekjuskatti. Alls nýttu ríflega 18 þús- und fjölskyldur þann möguleika, og drógu samtals um 1,6 milljarða frá skattstofninum. Það gera tæp- lega 90 þúsund krónur að meðaltali á fjölskyldu. - bj Um 2,1 milljarður fæst með hátekjuskatti á fólk með tekjur yfir 680 þúsundum: Um 9.500 greiða hátekjuskatt FASTEIGNIR Skuldir landsmanna vegna íbúðakaupa nema nú í fyrsta skipti meira en 50 prósentum af verðmæti eignanna, þrátt fyrir að einn af hverjum fjórum fasteignaeigendum skuldi ekkert í húsnæði sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA TRÚLOFUNARHRINGAR falleg minning á fingur www.jonogoskar.is LAUGAVEGUR / SMÁRALIND / KRINGLAN DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur ákært rúmlega fimmtugan mann fyrir að ráðast með hrottafengn- um hætti á fyrrum unnustu sína og misþyrma henni. Manninum er gefið að sök að hafa á heimili sínu í maí árið 2009 veist með ofbeldi að konunni, hrint henni á rúm, sest ofan á hana og slegið og sparkað í hana. Konan fékk glóðarauga, svo og eymsli og mar í andliti og á líkama. Í júní réðst maðurinn aftur á konuna, í það skiptið við Suður- hlíð framan við Suðurhlíðarskóla. Hann reif í hár hennar, settist klofvega ofan á hana og sló hana nokkrum sinnum með krepptum hnefa í andlitið. Að auki tók hann hana hálstaki. Af þessum misþyrmingum fékk konan glóðarauga og mikið mar víða í andliti. Þá var hún hrufluð á hálsi og með bólgna vör. Konan gerir kröfu um að mað- urinn verði dæmdur til að greiða henni þrjár milljónir króna í miskabætur. Ákæruvaldið krefst þess að hann verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnað- ar. - jss SUÐURHLÍÐARSKÓLI Í síðara skiptið réðst maðurinn á konuna framan við Suðurhlíðarskóla. Karlmaður á sextugsaldri ákærður fyrir að ráðast tvívegis hrottalega á konu: Misþyrmdi fyrrum unnustu LÖGREGLUMÁL Styttu sem lista- konan Steinunn Þórarinsdóttir gerði og forseti Íslands afhjúp- aði árið 2006 var stolið af stalli sínum í bresku borginni Hull í fyrrinótt. Atburðurinn náðist á öryggismyndavél, sem þó var í nokkurri fjarlægð, og verið er að kanna hvort þjófarnir hafi náðst á öðrum öryggismyndavélum í grenndinni. „Ég hélt fyrst að verið væri að grínast í mér þegar ég var vakin upp af borgarstarfsmönnum í Hull sem færðu mér tíðindin,“ segir Steinunn. „Enda enginn hægðarleikur að koma þessu í burtu.“ Styttan er 1,80 metrar að hæð og vegur á bilinu 250 til 300 kíló. Steinunn segir tjón borgar- innar hlaupa á milljónum. - jse Nautsterkir þjófar að verki: Íslensku verki stolið í Hull FÖR Í HULL Bronsstyttan starir ekki lengur mót hafi frá sjávarsíðunni í Hull. LÖGREGLUMÁL Brotist var inn í þrjá sumarbústaði í landi Vatnsenda í Skorradal um helgina, að því er fram kemur á vef Skessuhorns. Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar í Borgarfirði var mörg- um tækjum stolið úr bústöðunum. Þá var brotist inn í geymsluhús- næði í Hvalfirði og tæki tekin úr bát sem þar var geymdur. Þeim sem urðu varir við grunsamlegar mannaferðir í Skorradal og Hval- firði um síðustu helgi er bent á að hafa samband við lögregluna. - jss Innbrot í Borgarfirði: Stolið úr bát og bústöðum Tvístefna í Tryggvagötu Tryggvagötu milli Lækjargötu og Póst- hússtrætis var breytt í tvístefnugötu í morgun. Breytingin er gerð í tilrauna- skyni til eins árs og standi síðar vilji til að festa breytinguna í sessi þarf að endurskoða deiliskipulag svæðisins með það í huga. SAMGÖNGUR Finnst þér að þjóðkirkjan eigi að greiða bætur til kvenna sem sakað hafa fyrrverandi biskup um kynferðisbrot? Já 55,3 Nei 44,6 SPURNING DAGSINS Í DAG Óttast þú að hryðjuverk verði unnin á Íslandi? Segðu þína skoðun á visir.is. KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.