Fréttablaðið - 26.07.2011, Side 17
Básaskersbryggju | 900 Vestmannaeyjar | Sími 481-2800 | Fax 481-2991 | herjolfur@herjolfur.is | www.herjolfur.is
Þjóðhátíð í Eyjum er einn af hápunktum ársins fyrir marga Íslendinga. Til að tryggja að
helgin heppnist sem best eru nokkur atriði sem allir verða að vita, ekki síst þeir sem
ætla í Herjólfsdal í fyrsta skipti. Þannig verður upplifunin sem ánægjulegust!
Góða ferð og góða skemmtun á Þjóðhátíð!
Gefðu þér góðan tíma til að komast til Landeyjahafnar, því umferðin gæti orðið
þung. Hraðakstur í þungri umferð getur haft alvarlegar afleiðingar! Akstur frá Reykjavík til
Landeyjahafnar tekur um 2 klst. miðað við venjubundna umferð.
Best er að prenta farmiðana út heima. Þó er líka hægt að sækja þá við
Landeyjahöfn eða í Vestmannaeyjum en þá þarf að gefa sér góðan tíma.
Vegna gríðarlegs álags borgar sig að sækja miðana a.m.k. degi fyrir brottför.
Hafðu miðana tilbúna. Þá geturðu gengið beint um borð í Herjólf án þess að þurfa að
koma við í afgreiðslunni. Athugið að staðfestingarblað gildir ekki sem
brottfararspjald.
Geymdu miðann þinn á öruggum og þurrum stað, því ef þú týnir miðanum þá þarftu að
kaupa nýjan nema þú getir prentað út nýtt afrit af honum!
Passaðu vel upp á bókunarnúmerið þitt, því farmiðar eru ekki skráðir eftir nafni.
Kauptu aldrei miða af þriðja aðila - nema þú treystir viðkomandi fullkomlega.
Það er auðvelt að prenta hvern miða út oftar en einu sinni! Ef einhver hefur afrit af þínum
miða og kemur á undan þér þarft þú að kaupa nýjan - ef laust er í skipið!
Mætið eigi síðar en 60 mínútum fyrir brottför um Verslunarmannahelgina,
hvort sem gengið er beint um borð eða bíll tekinn með.
Bílstjórar koma bílum sínum sjálfir fyrir á bíladekkinu með aðstoð starfsfólks, allir aðrir
farþegar verða hins vegar að fara landganginn.
Fylgstu vel með ferðaáætlun á heimasíðunni okkar, www.herjolfur.is, eða í öðrum
miðlum þar sem áætlun getur breyst með litlum fyrirvara.
Almenna skilmála Eimskips um flutning á farþegum og farangri er að finna á
www.herjolfur.is.
Sýnum öðrum farþegum, Eyjamönnum og gestum Þjóðhátíðar tillitssemi og
skemmtum okkur öll saman á ábyrgan hátt um helgina!
10 atriði sem gera helgina ánægjulegri fyrir alla!
1
1
254
Reykjavík
Garður
Reykjanesbær
Grindavík Þorlákshöfn
Selfoss
Hveragerði
Hella
Hvolsvöllur
Vík
Vestmannaeyjar
Góða ferð á Þjóðhátíð!
Landeyjahöfn
FÍ
T
O
N
/
S
ÍA