Fréttablaðið - 26.07.2011, Side 21
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
Mangó er vinsælasti ávöxtur í heimi. Kíví inniheldur
helmingi meira C-vítamín en appelsína og það eru yfir
7.000 eplategundir ræktaðar í heiminum. Þetta er á
meðal þess fróðleiks sem er að finna á heimasíðunni
http://www.fruitsinfo.com/
teg 198880 - mjúkur og létt fylltur í BC skálum
á kr. 4.600,- buxur í stíl á kr. 1.990,-
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Opið mán.-fös. 10-18.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Vertu vinur
N Ý T T O G G L Æ S I L E G T
Nuddrúlla
Mýkir upp stífa og auma vöðva eftir æfingar.
Hentar vel fyrir íþróttafólk og alla sem stunda
líkamrækt, göngur, hlaup og golf.
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Í sumar er opið virka daga frá kl. 9 -18
Verð: 4.980 kr.
Sölustaðir:
10 -11, Inspired í Flugstöðinni, Samkaup, Nettó, Kaskó, Fjarðarkaup, Skeljungsbúðirnar, Olís, N1,
Kaupfélag V- Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga,Verslunin Vísir, Bláa lónið, Hreyfing, Krambúðin,
Fiskbúðin Freyja, Melabúðin.
ÍSLENSK FÆÐUBÓT
BITAFISKUR
-næring fyrir líkama og sál
Opið: má-fö. 12:30-18, lokað um helgar.
Dalvegi 16a, Rauðu múrsteinshúsunum
Kóp. 201 - S: 517 7727
www.nora.is facebook.com/noraisland
Útsalan heldur áfram
Máluð húsgögn - 30%
Aðrar vörur -20%
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI FRÓÐLEIKUR
Meiri Vísir.
Sölufulltrúi:
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Miðvikudaga
Þ
að hefur mikil áhrif á
krakka að geta ekki lært
að lesa, dragast aftur úr
og verða eftirbátar,“ segir
Rannveig Lund, sérkennari sem
er með meistaragráðu í uppeldis-
og menntunarfræðum. Hún rekur
Lestrarsetur Rannveigar Lund.
„Þá kemur upp minnimáttarkennd
sem getur brotist út í því að börnin
verða andfélagsleg, með læti og
uppsteyt, eða draga sig inn í skel
sína. Þetta er hættan ef það dregst
lengi að ráða bót á lestrarerfiðleik-
unum.“
Skýrsla um lestrarkennslu í
Evrópu sem gerð var á vegum
Eurydice, upplýsinganets á vegum
Evrópusambandsins um mennta-
mál í Evrópu, var birt fyrir
skömmu. Í skýrslunni kemur
fram að lestrarkunnátta íslenskra
nemenda í fjórða bekk er undir
meðaltali í Evrópusambandinu.
Auk þess glíma að meðaltali fleiri
íslenskir nemendur við alvarleg
lestrarvandamál heldur en annars
staðar í álfunni. Tölfræði og upp-
lýsingar skýrslunnar eru unnar úr
gögnum sem Eurydice hefur safn-
að í löndum ESB, Íslandi, Noregi,
Liechtenstein og Tyrklandi, ásamt
upplýsingum úr PIRLS-, PISA- og
TALIS-könnunum.
Í skýrslunni kemur fram að
Ísland er annað tveggja könn-
unarlanda þar sem lestrarnám-
skrá hefur ekki breyst á síðustu
tíu árum. Hitt landið er Búlgaría
en þar er að finna þá nemendur
álfunnar sem standa hvað verst í
lestri. Rannveig er innt út í breyt-
ingar á námskrá lestrar á Íslandi
undanfarin ár. „Ég fullyrði að á
síðustu fjórum árum hafa áherslur
breyst mjög mikið í öllum skól-
um. Það hafa verið tvær stefnur í
gangi, önnur er byrjendalæsi Rósu
Eggertsdóttur og hin er byrjenda-
læsi sem byggir á því að mæta
hverjum og einum í getuskiptum
hópum.“
Einnig kemur fram að á Íslandi
eru lesskilningsæfingar í námskrá
mjög takmarkaðar. Íslenskir nem-
endur þurfa bara að geta dregið
ályktanir af texta og gert úr
honum útdrátt á meðan nemendur
annarra Evrópulanda þurfa meðal
annars að geta tengt hluta texta
saman, nota þekkingu úr textan-
um, kanna eigin lesskilning og búa
til mynd úr textanum. Einungis
fjörutíu prósent íslenskra kennara
báðu nemendur í fjórða bekk um
að skýra hvað þeir hefðu lesið, að
minnsta kosti vikulega og innan
við eitt prósent bað nemendurna
um að lýsa textastíl og uppbygg-
ingu textans.
Íslendingar standa þó vel að því
er varðar aðstoðarkennslu í lestri
en aðstoðarkennari var tiltækur
fyrir um 80 prósent nemenda í
fjórða bekk á einhverjum tíma-
punkti. Þá kemur einnig fram að
fleiri barnabækur eru á íslenskum
heimilum en eru að meðaltali og
að íslenskir nemendur lesa næst-
mest í Evrópu.
martaf@frettabladid.is
Hefur áhrif á sjálfsmynd
Námskrá lestrar á Íslandi hefur ekki breyst í tíu ár að því er fram kemur í nýrri evrópskri rannsókn:
MYND/ÚR EINKASAFNI