Fréttablaðið - 26.07.2011, Page 32
26. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR24
BAKÞANKAR
sr. Sigurðar
Árna
Þórðarsonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. feikn, 6. þys, 8. þrá, 9. skilaboð, 11.
drykkur, 12. lufsa, 14. þátttakandi, 16.
pípa, 17. svívirðing, 18. óðagot, 20.
skammstöfun, 21. auma.
LÓÐRÉTT
1. unaður, 3. kusk, 4. ástir, 5. atvikast,
7. fagurgali, 10. dreift, 13. taug, 15.
innyfla, 16. iðka, 19. tvö þúsund.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. glás, 6. ys, 8. ósk, 9. sms,
11. te, 12. tjása, 14. aðili, 16. æð, 17.
níð, 18. fum, 20. fr, 21. arma.
LÓÐRÉTT: 1. lyst, 3. ló, 4. ástalíf, 5.
ske, 7. smjaður, 10. sáð, 13. sin, 15.
iðra, 16. æfa, 19. mm.
Ég veiddi
þennan eftir að
ellefta barnið
mitt fæddist.
Hvað
ertu að
gera?
Bara að athuga. Mér finnst mikilvægt
að huga að
ytra útliti.
Hver er stelpan hennar
mömmu?
hah? búbú baba bíbí!
Mér finnst
kvikmyndatónlist 50
Cent fín, en fyrri verk
hans eru miklu
meira krefjandi.
Sam-
mála.
Merki um heimsendi
kynnir:
Hræðilegir
höfuð-
áverkar
úr
1. deildinni
Í næstu
viku:
Fyrrverandi
leikmenn
Stoke
með
hár
á rassinum
Hvað gera unglingar og ungt fólk í sumar búðum um mitt sumar? Tala
saman, hlæja, ræða málin, njóta lífsins. Og
svo er þetta tími upplifana, hrifningar og að
verða ástfanginn.
ÚTEY ER á einu dásamlegasta svæði
Noregs. Eplaakrarnir við Tyrivatnið eru
sannarlega heillandi. Systir mín og fjöl-
skylda býr í nágrenninu og bátalægi þeirra
er rétt við Útey, sem Verkamannaflokkur-
inn á. Systir mín fer með gesti sína á þetta
svæði unaðar og dásemda. Þegar ég var við
bryggjuna í Útey hugsaði ég um hvað svona
eyja væri góður vettvangur fyrir lífsmótun
fólks til framtíðar.
SVO VARÐ heimsendir í þessari paradís,
sem djöfull læddist inn í. Þegar sprengjan
sprakk í Ósló héldu flestir, að óður múslimi
hefði unnið hryllingsverkið. En hið illa
kom ekki að utan heldur að innan. Hinn
illi var ekki aðkomumaður heldur inn-
fæddur. Forsætisráðherra Noregs
endurómaði amerískan talshátt og
sagði verknaðinn vera heiguls-
verk. Það er rangt því sprenging og
fjöldamorð er fremur æði haturs.
AÐ BAKI djöfulskapnum er ótti,
sem beinist að öllu því sem er öðru-
vísi: Ótti við aðrar lífsskoðanir, litar-
hætti, öðruvísi menningu og fólk. Ótti
elur af sér hatur og hatur gengur alltaf í lið
með dauðanum. Ofbeldið á sér því stefnu,
berst gegn opnu samfélagi umhyggju og
samhjálpar. Illvirkin eru atlaga gegn fram-
tíð, sem umfaðmar ríkidæmi margra kyn-
þátta og samvinnu menningar, átrúnaðar og
fjölbreytileika. Hinn norski fjöldamorðingi
er ekki ruglaður byssukall, heldur maður
sem fyrirlítur öðruvísi fólk og hatar fjöl-
breytileika. Hann reynir að fyrirbyggja, að
ólíkt fólk með mismunandi trú og sið geti
búið saman í friði og jafnvel orðið ástfangið
hvert af öðru.
SPRENGINGIN í Ósló og fjöldamorðin
vega að gildum, trú, menningu og stefnu
norrænna þjóða. Við erum öll Norðmenn
þessa sorgardaga. Eigum við að leyfa högg-
bylgjunni frá Ósló að hræða eða skothríð-
inni í Útey að beygja okkur? Nei. Mæður
og feður, sem gáfu börnum sínum gildi,
elsku og framtíð, fóru til að sækja lík barna
sinna. Glæpur var unninn á þeim, norsku
þjóðinni en líka okkur – öllum. Hatrið réðst
gegn ástinni. Látum ekki ungt fólk deyja
til einskis, heldur heiðrum það með því
að treysta samfélagsfriðinn. Mætum ótta
með trausti. Hvikum ekki frá uppeldi fólks
til menningarlegrar og trúarlegrar fjöl-
breytni. Ræðum opinskátt eðli hatursins.
Leyfum lífinu að lifa. Til forna var sagt:
Aldrei aftur Masada. Gegn hatri nútíma:
Aldrei aftur Útey.
Aldrei aftur Útey
Jákvæðar
fréttir fyrir
sumarið
Allt sem þú þarft
*Meðan birgðir endast
Það fá allir afmælisblöðru*
á sölustöðum Fréttablaðsins
um land allt.
Þú færð Fréttablaðið
á 12 stöðum á Suðurnesjum.
Það er engin ástæða til að missa af neinu í sumar. Fréttablaðið er
aðgengilegt um land allt. Því er dreift ókeypis í lúgur og kassa á
kjarnadreifingarsvæði okkar. Auk þess er það selt í lausasölu á
kostnaðarverði á 120 sölustöðum um land allt.
Þú getur alltaf fengið Fréttablaðið beint í símann, fartölvuna
eða spjaldtölvuna hvar sem er og hvenær sem er á Vísi.is eða
fengið það sent með tölvupósti daglega.
Nánar um dreifinguna má lesa á visir.is/dreifing.
N1 þjónustustöð, Aðalstöðinni,
Keflavík
10-11, Keflavík
N1 verslun, Keflavík
Olís, Básinn, Reykjanesbæ
Samkaup Strax, Reykjanesbæ
10-11, Leifsstöð
Eymundsson, Leifsstöð
Tíu ellefu Hraðkaup, Reykjanesbæ
Nettó, Grindavík
Samkaup Strax, Sandgerði
Samkaup Strax, Garði
Bónus, Fitjum, Njarðvík
Fjöldi lausasölustaða á Suðurnesjum