Fréttablaðið - 26.07.2011, Síða 42

Fréttablaðið - 26.07.2011, Síða 42
26. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR34 ALLIR Á VÖLL INN! lau. 20. ág Úrslitaleikur Laugardalsvöllur Karlar mið. 27. júl 19:15 Þór - ÍBV Þórsvöllur sun. 31. júl 16:00 BÍ/Bolungarvík - KR Torfnesvöllur lau. 13. ág Úrslitaleikur Laugardalsvöllur Konur Hverjir taka bikarinn? undanúrslit og úrslit í Valitor bikarnum H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA FÓTBOLTI Úrúgvæinn Diego Forlan bætti enn einni skrautfjöðrinni í hattinn um helgina þegar hann leiddi þjóð sína til sigurs í Suður- Ameríkukeppninni í knattspyrnu. Þessi jafn- fætti spyrnumaður af guðs náð skoraði tvö mörk í úrslitaleiknum gegn Paragvæ. Sigur- inn gerði Úrúgvæ að sigursælustu þjóð í sögu keppninnar. Forlan á ekki langt að sækja knatt- spyrnuhæfileikana en faðir hans og afi voru báðir í sigurliði Úrúgvæ í keppninni á sínum tíma. „Afi minn vann titilinn, pabbi minn vann titilinn og nú hef ég unnið hann. Þetta er stór stund fyrir fjölskyldu mína. Forlan-nafnið hefur verið skráð á spjöld knattspyrnusögunn- ar,“ sagði Forlan stoltur. Evrópubúar fengu fyrst veður af Forlan þegar hann gekk til liðs við Manchester United árið 2002. Hann hafði slegið í gegn með Indep- endiente í Argentínu og mikils vænst af honum í framlínu Englandsmeistaranna. Tíma Forlan hjá United verður helst minnst fyrir fagnaðarlæti hans þau fáu skipti sem hann skoraði. Forlan fagnaði mörkum sínum undantekningarlítið með því að rífa sig úr að ofan áður en farið var að sýna leikmönnum spjaliða leikmenn fyrir slík fagnaðarviðbrögð. Í eitt skiptið var fögnuðurinn svo mikill að honum tókst ekki að koma sér í treyjuna áður en leikurinn hófst að nýju. Forlan gekk erfiðlega að vinna sér fast sæti í stjörnum prýddu liði United. Hann kom iðu- lega af bekknum og markatölfræði hans því verri fyrir vikið. Eftir þrjú tímabil á Englandi tóku við betri tímar í heitara veðurfari á Spáni. Forlan varð markakóngur á Spáni með gulu kafbátunum í Villarreal sem tryggðu sér óvænt sæti í Meistaradeild Evrópu. Mörkin tryggðu honum markakóngstitil Evrópu í fyrra skiptið af tveimur. Mikil breyting á stuttum tíma. „Eftir að ég skipti um félag fór ég að spila alla leiki. Það gefur þér sjálfstraust sem þú færð ekki ef þú situr á varamannabekknum. Hjá Villarreal fékk ég tækifærið og mínúturn- ar á vellinum útskýra þessa breytingu,“ segir Forlan. Forlan varð einnig markahæstur á Spáni og Evrópu í búningi Atletico Madrid þar sem hann spilar nú. Með Atletico vann Forlan Evrópu- deildina vorið 2010 þar sem hann skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri í úrslitaleiknum gegn Fulham. Mánuði síðar hófst HM í Suður-Afríku þar sem Forlan var fremstur meðal jafningja. Fimm mörk hans skiluðu Úrúgvæ í 4. sæti keppninnar og Forlan var valinn besti leik- maðurinn. Með sigrinum á Paragvæ í Buenos Aires á sunnudaginn hefur Forlan líklega náð hátindi feril síns. Atletico Madrid er ólíklegt til þess að ná góðum árangri í einokaðri spænskri deildar- keppni. Þá verður Forlan orðinn 35 ára gamall þegar HM fer fram í Brasilíu 2014. Forlan þarf þó ekki að hafa áhyggjur af veru sinni í sögu knattspyrnunnar. Hann er leikja- hæsti leikmaðurinn í sögu þjóðar sinnar og deilir markametinu með þjóðhetju Úrúgvæja frá HM 1930. Þá voru Úrúgvæjar fremstir meðal jafningja og frammistaða Forlans hefur fengið landa hans til þess að upplifa tímabil vel- gengni á nýjan leik. kolbeinntd@365.is Forlan fetar í fótspor föður og afa Diego Forlan hefur skráð nafn sitt í sögubækurnar. Síðan hann yfirgaf herbúðir Manchester United hefur hann raðað inn mörkunum hjá félagsliðum sínum og landsliði. Hann er landsleikjahæsti Úrúgvæinn, vantar eitt mark til að verða markahæstur og hefur nú unnið Copa America líkt og faðir hans og afi. MEÐ GULLIÐ UM HÁLSINN Diego Forlan fagnar sigri í Copa America með félögum sínum. MYND/AFP FÓTBOLTI Knattspyrnudómarinn Kristinn Jakobsson hefur þegið boð enska knattspyrnusambandsins um að dæma á æfingamótinu Emirates Cup sem fram fer á heimavelli Arsenal. Arsenal mun taka þátt í mótinu ásamt Boca Juniors frá Argentínu, PSG frá Frakklandi og New York Red Bulls frá Bandaríkjunum. Kristinn mun dæma opnunarleik mótsins, laugardaginn 30. júlí, á milli New York Red Bulls og PSG en sá leikur verður sýndur á Stöð 2 Sport. Kristinn mun í framhaldinu fara til Zagreb í Króatíu en þar mun hann dæma seinni leik Dinamo Zagreb og HJK Helsinki í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar UEFA. - óój Kristinn Jakobsson: Dæmir leik á Emirates Cup KRISTINN JAKOBSSON Verður á ferðinni á næstunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI Íslenska stúlknalandsliðið í knattspyrnu skipað leikmönnum 17 ára og yngri hélt í gærkvöldi til Sviss. Fram undan er undan- úrslitaleikur við Spán á fimmtudag en Spánverjar eru ríkjandi Evrópu- meistarar í þessum aldurs flokki. „Þetta verður mjög erfitt en við ætlum að gefa allt í þetta og taka þennan leik,“ segir Lára Kristín Pedersen, miðjumaður íslenska liðsins. Lára Kristín, sem leikur með Aftureldingu, er kokhraust og segir íslenska liðið eiga von. „Að sjálfsögðu eigum við mögu- leika. Við erum búnar að standa okkur alveg jafnvel og þær, jafn- vel betur. Við ætlum að sýna hvað við getum,“ segir Lára Kristín sem segir samheldnina, hjartað og föður landsástina vera styrk íslenska liðsins. Leið íslenska liðsins í undan- úrslit hefur verið löng og ströng en íslenska liðið hefur farið á kost- um. Liðið lagði Litháen, Búlgaríu og Ítalíu með yfirburðum í undan- keppninni síðastliðið haust. Í vor urðu Englendingar, Pólverjar og Svíar á vegi íslensku stúlknanna. Sex sigrar og markatalan 37-2 gefur tilefni til þess að ætla að íslenska liðið sé sterkt. „Styrkur okkar er hve vel við þekkjumst. Það er mikil sam- heldni í hópnum og engin skilin út undan,“ segir Selfyssingurinn Guð- munda Brynja Óladóttir, framherji íslenska liðsins. „Við erum töluvert stærri og þyngri en þær. Við eigum að vera sterkari í föstum leikatrið- um og eigum að vinna þær þar. Við ætlum að láta finna fyrir okkur,“ segir Guðmunda sem er leikjahæst í íslenska liðinu. Íslenska landsliðið lenti í 5. sæti á Norðurlandamótinu í sumar en þá voru stúlkurnar fæddar árið 1994 ekki gjaldgengar. Liðið vann Svía, gerði jafntefli við Þjóð- verja og Norðmenn en tapaði gegn Frökkum. Ísland mætir Spáni á fimmtu- daginn klukkan 12 á hádegi. Í hinni undanúrslitaviðureigninni mætast Þýskaland og Frakkland. Leikið verður um sæti um næstu helgi. - ktd Styrkleiki íslenska stúlknalandsliðsins í knattspyrnu: Erum töluvert stærri og þyngri en þær GUÐMUNDA BRYNJA Hefur skorað 13 mörk í 17 leikjum með 17 ára landsliðinu.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.